Author: Chef-Jack

Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

Jökull „Kaldi“ Jóhannsson hefur skrifað undir atvinnumannasamning í tölvuíþróttum við bandaríska liðið Tempo Storm.  Jökull keppir undir merkjum Tempo Storm í leiknum Hearthstone, þar sem hann kallar sig Kaldi. Ég spilaði Starcraft áður og hafði eitthvað upp úr því, en ekkert í fullu starfi. Síðan byrjaði ég á þessu af fullum krafti í byrjun árs, segir Jökull í samtali við Viðskiptablaðið, en hann er 22 ára gamall. Utan þess að keppa fyrir hönd liðsins á mótum heldur hann úti síðu á streymisíðunni Twitch, auk þess sem hann hefur tekið að sér að lýsa mótum og keppnum í Hearthstone. Þetta er…

Lesa meira

Í gær fór fram mikilvægasti leikur Íslands gegn Frökkum í CS:GO heimsmeistaramótinu, þar sem keppt var BO3 og sigurvegari myndi tryggja sér þáttökurétt á lokamótinu sem haldið er í Belgrade, höfuðborg Serbíu dagana 8. – 11. október næstkomandi. Því miður náði Íslenska liðið ekki að tryggja sér sigur, 16-12 (map: de_cache) og 16-10 (map: de_dust2) fyrir Frakkland, en engu að síður frábær árangur hjá lítilli þjóð eins og Íslandi. Skemmtilega umfjöllun hér, sem birt var á vefnum visir.is rétt fyrir leik. Íslenska lineup:  Pétur Örn „peterr“ Helgasson  Víðir „Veejay“ Jóhannsson  Páll Sindri „pallib0ndi“ Einarsson Kristján „Kruzer“ Finnsson  Ólafur Bárði „ofvirkur“…

Lesa meira

Íslenska landsliðið í Counter-Strike: Global Offensive (CS:GO) undirbýr sig nú að kappi fyrir heimsmeistaramótið í þessum vinsæla tölvuleik.  Ísland í dag kíkti við á æfingu og fékk að spreyta sig með strákunum. Eins og fram hefur komið þá mun Ísland mæta Frökkum í 16 liða útsláttakeppni í heimsmeistaramótinu á morgun fimmtudag 1. október klukkan 15:30 og keppt verður BO3. Mynd: skjáskot úr myndbandi

Lesa meira

Stúdentaráð Háskóla Íslands í samstarfi við Stúdentakjallarann ætlar að sýna leik milli Íslands og Frakklands í lokaleik undankeppni heimsmeistaramótsins í CS:GO.  Hér er um að ræða tilraunarverkefni til að kanna áhugann á frekari útsendingum. Keppnin fer fram á morgun fimmtudag 1. október og keppt verður BO3. Smellið hér fyrir nánari upplýsingar og munið að bjóða sem flestum á viðburðinn. Mynd: af facebook síðu Stúdentaráðs Háskóla Íslands.

Lesa meira

Þá er búið að tilkynna 16 liða útsláttakeppnina og mun Ísland mæta Frökkum í heimsmeistarakeppninni. Keppnin fer fram á morgun fimmtudag 1. október og keppt verður BO3.  Allt verður í beinni og verður hægt að horfa á viðureignina með því að smella hér. Átta lið komast áfram og keppa um 13 milljónir í úrslitakeppninni sem fram fer í Belgrade, höfuðborg Serbíu dagana 8. – 11. október næstkomandi. Áfram Ísland.

Lesa meira

Ísland er komið áfram í 16 liða útslátt þar sem 8 lið komast áfram til Serbíu. Ísland sigraði Hvíta-Rússland 16 – 14, en töpuðu gegn Svíum í gær 16 – 12 og Norðmönnum í dag 16 – 8.  Ísland keppti síðan Bosníumenn í dag og sigruðu þann leik og við Belgíu sem endaði 16 – 4 með sigri Belgum. Ekki er komin dagskrá á útsláttaleikina en þeir verða spilaðir á morgun miðvikudag eða fimmtudag.

Lesa meira

Íslenska CS:GO landsliðið tapaði naumlega í gærkvöldi á móti Svíþjóð 16 – 12 sem telst ansi góður árangur enda atvinnumenn sem skipa sænska liðinu en meðlimir þess eru meðal annars ú liðunum Fnatic og NiP. Leikinn er hægt að horfa í heild sinni með því að smella hér. Ólafur „Some0ne“ Sigurðsson segir m.a. í tilkynningu: Ég vil þakka öllum þeim sem horfðu á strákana spila í kvöld, það var ótrúlegt að sjá allan þennan fjölda horfa á og það var eflaust töluvert af fólki sem að er ekki inná þessari grúppu þökk sé fréttaumfjöllun um liðið að undanförnu. Við töpuðum…

Lesa meira

Hér á eSports.is eru allir vegir færir og það meira að segja í allar áttir, en hér má sjá fréttayfirlit, tenglar ofl. á aðrar heimasíður, aðgengilegar hér á forsíðunni. Bumbukallinn á psx.is Tökum hér létta yfirferð það sem birst hefur á öðrum Íslenskum tölvuleikjasíðum síðastliðna daga og byrjum á psx.is, en þar hamrar Bumbuliuz á lyklaborðið eins og enginn sé morgundagurinn.  Finnst hálfskrítið að sjá fréttirnar á psx.is ekki með dagsetningar, en hvað um það.  Gagnrýni á Pro Evolution Soccer 2016 er að finna á psx.is þar sem Bumbukallinn gefur leiknum 8,5 af 10 mögulegum, alveg þokkaleg einkunn þar á…

Lesa meira

Spennan í cs-samfélaginu er gríðarleg, allir spenntir fyrir þessum leik og það verða fáir að spila á þessum tíma, það verða allir stjarfir að fylgjast með, segir Ólafur „Some0ne“ Nils Sigurðsson, sem er einn af aðstandendum íslenska liðsins, í samtali við Vísi. Í kvöld, klukkan hálf níu, keppir íslenska landsliðið í cs við hina ógnarsterku Svía – sem er biti. Virkilega skemmtileg umfjöllun um CS:GO landsliðið er hægt að nálgast á visir.is með því að smella hér. Mynd: Samsett mynd á visir.is

Lesa meira

Þátturinn Ísland í dag kíkti í heimsókn nú á dögunum á strákana í CS:GO landsliðinu þar sem þeir voru á fullu að æfa sig í æfingahúsnæði sem er í eigu Símans og er staðsett uppá Stórhöfða. Ísland í dag verður sýnt nú í vikunni og verður gaman að sjá útkomuna. Þeir hafa verið að æfa stíft undanfarið og hafa verið að spila á móti mörgum top-tier liðum í Evrópu með góðum árangri. sagði  Ólafur „Some0ne“ Sigurðsson einn af þjálfurum landsliðsins í samtali við esports.is. Ísland sigraði sinn fyrsta leik af fimm Til gamans má geta að fyrsti leikur af fimm…

Lesa meira