GameTíví heldur áfram að setja svip sinn á leikjaárið og byrjar nýtt ár með hryllilegri samvinnu, bókstaflega. Í kvöld klukkan 20 fer í loftið bein útsending þar sem hópurinn tekst á við hryllingsleikinn MIMESIS, leik sem reynir jafnt á taugar sem samskipti spilara.
Útsendingin fer fram á Twitch-rás GameTíví, þar sem áhorfendur geta fylgst með því hvernig samvinna breytist hratt í tortryggni þegar ógnin leynist þar sem síst skyldi. Leikurinn hefur vakið athygli fyrir myrka stemningu og ófyrirsjáanlega spilun sem gerir hverja ákvörðun að áhættu.
Bein útsending hefst klukkan 20 á www.twitch.tv/gametiviis




