
Mynd: Steam
Leikja- og hýsingarþjónum tilraunaverkefnisins PUBG, leiknum PUBG: Blindspot, verður lokað fyrir fullt og allt á morgun, mánudaginn 30. mars. Leikurinn kom út 5. febrúar og hefur aðeins verið í Early Access í tæpa tvo mánuði.
Sjá einnig: PUBG Studios kynnir nýjan skotleik, PUBG: Blindspot – Vídeó
Leikjaframleiðandinn Sequoia Yang sagði frá því í tilkynningu á Steam að ARC-liðið (hópurinn sem stendur að baki leiksins) hafi verið að „kanna margar leiðir til að bæta upplifunina og færa leikinn áfram“ og komist að þeirri niðurstöðu að það „gæti ekki á sjálfbæran hátt veitt það upplifunarstig sem við ætluðum okkur að veita með Early Access“.
Í frétt á polygon.com kemur fram að ARC-liðið mun þó halda áfram að vinna saman, og bætir Yang að lokum við að „vinna ARC-liðsins við PUBG: Blindspot muni upplýsa þróunarstarf okkar í framtíðinni“.

Sem fyrr segir hefur leikurinn aðeins verið í Early Access í 54 daga.
ARC-lið Krafton og PUBG Corporation gaf PUBG: Blindspot út 5. febrúar. Í stað þess að vera „battle royale“ leikur var hann „topp-niður“ herkænsku-skotleikur sem svipaði ögn til Rainbow Six: Siege. Tvö lið takast á í umhverfi þar sem annað liðið leggur áherslu á að koma fyrir sprengju en hitt reynir að koma í veg fyrir það með því að útrýma andstæðingunum.
Viljir þú prófa leikinn áður en hann hverfur hefurðu daginn og kvöldið til þess, en hann fæst án endurgjalds á Steam.



