
Ólafur Jóels, þáttastjórnandi Game Tíví, ræddi í viðtali við Viðskiptablaðið um væntanlega útgáfu Grand Theft Auto 6, sem margir bíða spenntir eftir. Hann segir útgáfudaginn loks vera kominn á hreint – sem ekki aðeins gleður leikjafólk, heldur einnig samkeppnisaðila í bransanum.
„Ég held samt að margir aðrir framleiðendur séu fegnir að það sé allavega kominn útgáfudagur. Það sem gerist nefnilega í leikjabransanum, þegar svona skrímsli eru gefin út, er að það vill enginn annar gefa út leik á sama tíma því þessi leikur mun taka allt súrefnið á markaðnum,“
segir Ólafur í viðtalinu.
Viðtalið má lesa í heild hér: Vildu ekki gefa út hálfkláraðan leik
Samsett mynd: rockstargames.com