Útgáfufyrirtækið Electronic Arts (EA) tilkynnti í maí að opinber kynning á næstu tilraun í Battlefield-flokknum („Battlefield 6“ eins og það hefur verið kallað hingað til) muni fara fram yfir sumarmánuðina. Sumarið norðurhveli nær formlega fram á 22.–23. september, þannig að tímabilið er enn nokkuð opið.
Engin kynning á Summer Game Fest (SGF)
Margir töldu að tilkynningin kæmi á vegum Summer Game Fest sem fór fram í júní, en þar kom hvorki sýnishorn né trailer.
Andy McNamara, yfirmaður markaðsdeildar hjá Battlefield Studios, EA sagði á X (áður Twitter):
„Battlefield samfélagið mun vita þegar kynningin er framundan. Við erum með Labs á fullu og undirbúum kynningu í sumar“.
Orðalagið gefur til kynna að sá tími sem eftir er af sumrinu sé enn valkostur – jafnvel fram í september.
Á meðan bíða fjölmiðlar og Battlefield samfélagið spennt eftir opinberum sýningum. sumir leggja til að EA haldi eigin kynningu – líkt og áður (BF 1 og BF 2042 fengu stórar kynningar). EA hefur ekki staðfest hvaða vettvang mun koma til greina – sumir nefna Gamescom í ágúst sem möguleika.
Í Battlefield Labs prófunum (sem hófust í mars) hafa nokkuð vídeóbrot lekið á veraldarvefinn sem sýna ýmsa þætti nýja leiksins – t.d. smærri kort (48 spilarar), aragrúa viðbætur af byssuma og endurhönnun á skriðrekum og jarðsprengjum. Þeir sem hafa aðgang að þessu úrvali óopinberra betaútgáfu hafa sett fram jákvæð ummæli um vopn, spilun osfr..
EA hefur staðfest að leikurinn mun koma út fyrir lok mars 2026. Enn er þó óljóst hvort leikurinn verði gefinn út á haustmánuðum 2025 – jafnvel þó pláss er fyrir Battlefield 6 eftir að GTA 6, sem var fært til 2026 og möguleikar opnast fyrir EA.
EA er staðráðinn í að kynna Battlefield 6 í sumar – þrátt fyrir að SGF hafi lítt haft áhrif á kynningu. Andy McNamara leggur áherslu á áframhaldandi vinnu í Labs og undirbúning fyrir kynningu „á næstu vikum“. Það miðast við besta tíma sem sumarið býður. Eftir kynningu er þá ljóst hvenær opinber beta verður sett af stað og hver útgáfudagurinn verður.
Myndir: skjáskot úr myndbandi