Apex Legends mun hætta á Nintendo Switch síðar á þessu ári, samkvæmt nýrri tilkynningu frá Respawn Entertainment. Season 29 verður það síðasta sem gefið er út fyrir Switch-vélina, en frá og með Season 30 verður leikurinn ekki lengur spilanlegur á kerfinu.
Í tilkynningu Respawn kemur fram að leikmenn geti haldið áfram að spila Apex Legends á Nintendo Switch til 4. ágúst 2026. Eftir þann dag verður aðgangi lokað og ekki lengur hægt að ræsa leikinn á Switch.
Samhliða þessu verður hætt að selja gjaldmiðil leiksins, svokallað Apex Coins, á Nintendo Switch frá og með 4. ágúst 2026. Leikmenn sem eiga inneign munu þó geta nýtt hana fram að þeim tíma. Þá verður einnig mögulegt að nota alla áður keypta gjaldmiðla á Nintendo Switch 2.
Hey legends, we want to share an important update about Apex Legends on the Nintendo Switch.
Season 29 will be the final update for Apex Legends on Nintendo Switch. Future seasons of Apex Legends will continue to be available on Nintendo Switch 2.
– Starting August 4, 2026…
— Apex Legends (@PlayApex) January 30, 2026
Öll framvinda, kaup og verðlaun leikmanna eru bundin við Electronic Arts-reikninga þeirra og munu flytjast sjálfkrafa yfir á Nintendo Switch 2. Þetta á einnig við um þá sem kaupa nýju leikjatölvuna eftir 4. ágúst 2026. Respawn tekur þó fram að í sumum löndum gildi reglur sem krefjist þess að stafrænn gjaldmiðill sé notaður innan 180 daga frá kaupum.
Áréttað er að þessar breytingar eigi einungis við um Nintendo Switch en ekki Switch 2. Apex Legends verður áfram aðgengilegur á öllum öðrum kerfum. Respawn segir ákvörðunina tengjast áframhaldandi þróun á tæknilegum grunni leiksins og metnaði til að skila sem allra besta upplifun.
Að lokum þakkar Respawn Nintendo-samfélaginu fyrir stuðninginn frá fyrsta degi og segist hlakka til að sjá leikmenn aftur um borð í Dropship-inu á Nintendo Switch 2.
Mynd: ea.com




