
Mynd: leagueoflegends.com
Skráning er nú í fullum gangi fyrir umspil inn í Úrvals KIA deildina, efstu deild íslenskrar League of Legends keppni, sem haldin er í samstarfi við RÍSÍ. Umspilið fer fram helgina 9. til 11. janúar og er þar gullið tækifæri fyrir lið að tryggja sér sæti á meðal þeirra bestu þegar deildin fer af stað síðar í mánuðinum.
Fyrirkomulagið er skýrt og aðeins örlítið „sweaty“. Efstu fimm liðin úr umspilinu tryggja sér sæti í Úrvals KIA deildinni, ásamt þremur liðum úr síðustu deild. Alls verða því aðeins átta lið í úrvalsdeildinni að þessu sinni, sem þýðir færri leikir en meiri gæði og mun minni svigrúm fyrir mistök. Hér er einfaldlega ekki pláss fyrir throw.
Þátttökugjald í umspilið er 25.000 krónur fyrir hvert lið og skal greiðslan berast í einni færslu í gegnum greiðslusíðu RISÍ. Mikilvægt er að nafn liðs fylgi með greiðslunni. Fyrir þau lið sem tryggja sér sæti í Úrvalsdeildinni færist þetta gjald með, en heildar þátttökugjald þar er 30.000 krónur, þannig að aðeins þarf að bæta við 5.000 krónum. Með öðrum orðum, umspilið gildir jafnframt sem greiðsla fyrir 1. deild og engin auka byrði leggst á liðin sem komast áfram.
Úrvals KIA deildin hefst 19. janúar og verður öllu til tjaldað. Leikirnir verða streymdir frá ARENA stúdíóinu og sýndir á Sjónvarpi Símans, Twitch og YouTube. Að vanda verða peningaverðlaun í boði fyrir efstu þrjú sætin, svo hér er bæði heiður og harður gjaldmiðill undir.
Skráning fer fram í gegnum Google Forms þar sem fyrirliði skráir liðið fyrir hönd hópsins og sér um greiðslu þátttökugjalds. Ekki er í boði að skrá sig sem einstakling að þessu sinni, en þeir sem vilja finna lið eða vera til taks sem varamenn eru hvattir til að senda skilaboð í kia-deildin-lft með main role og rank. Þar geta einstaklingar og tvíeyki fundið hvort annað, eða núverandi lið gripið upp öflugan substitute þegar á þarf að halda.
Skráningu lýkur í lok dags 8. janúar og er sérstaklega áréttað að allir þátttakendur kynni sér reglubókina vel áður en skráð er. Smá lestur núna getur sparað mikið drama síðar, bæði í lobbyinu og utan þess.
Skráning fer fram hér og tíminn er naumur fyrir þá sem ætla sér í eldlínuna.



