Author: Chef-Jack

Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

Orðrómur um næstu Xbox-leikjatölvu hefur verið á miklu flugi undanfarið. Vélin gengur undir vinnuheitinu Project Helix, en lítið hefur verið staðfest opinberlega hingað til. Nýlega fór af stað umræða um að Microsoft hygðist mögulega ekki framleiða tölvuna sjálft, heldur selja tæknina til annarra framleiðenda. Þeir gætu þá búið til sín eigin tæki, svipað og þegar tölvur koma frá mismunandi framleiðendum. Það varð til þess að Jason Ronald hjá Xbox steig fram og skýrði málið. Hann sagði skýrt að Project Helix verði hefðbundin Xbox-leikjatölva frá Microsoft sjálfu. Þar með var sá orðrómur sleginn út af borðinu. Hins vegar svaraði hann ekki…

Lesa meira

CLIMB, stendur fyrir tveggja daga vinnustofu í Síðumúla 35 dagana 25. og 26. apríl. Viðburðurinn er hugsaður fyrir alla sem hafa áhuga á að þróa tölvuleiki, hvort sem fólk hefur reynslu eða er að stíga sín fyrstu skref. Vinnustofan skiptist í tvo daga með ólíkum áherslum. Fyrri dagurinn snýst um innblástur og hugmyndavinnu, þar sem þátttakendur hlýða á erindi frá reynslumiklu fólki úr greininni og mynda teymi til að þróa leikjahugmyndir. Seinni dagurinn fer svo í að útfæra hugmyndirnar í einfalda frumgerð og kynna niðurstöðurnar í lok dags. Meðal fyrirlesara eru þau Melína Kolka og Rúnar Vestmann, stofnendur CLIMB, auk…

Lesa meira

Framhald hefur orðið á baráttunni um framtíð tölvuleikja eftir að átakið Stop Killing Games var til umræðu hjá Evrópusambandinu fyrr í dag. Þar komu saman þrjár nefndir Evrópuþingsins, IMCO, JURI og PETI, til að ræða svokallað European Citizens Initiative sem miðar að því að vernda aðgengi að leikjum þegar serverar eru lokaðir. Frumkvöðull verkefnisins, Ross Scott, og skipuleggjandinn Moritz Katzner tóku þátt í fundinum og voru ánægðir með viðbrögðin. Að þeirra sögn voru viðtökur almennt jákvæðar, bæði meðal þingmanna og fulltrúa framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Moritz sagði að nánast allir sem tjáðu sig hefðu tekið jákvætt í málið og að jafnvel gagnrýni…

Lesa meira

Íslenska tónlistarkonan Laufey er á leið inn í tölvuleikinn Fortnite þar sem hún verður aðalnúmer í næstu seríu af Fortnite Festival. Epic Games staðfesti um helgina að Laufey muni taka við keflinu af Chappell Roan sem „headline act“ í seríu 14 af tónlistarhluta leiksins. Tilkynningin kom fram í léttu kynningarmyndbandi þar sem Laufey prófar búninga með hjálp Fortnite-karaktersins Peely. besties: @laufey 🤝 Peely 4.16 pic.twitter.com/vQhgZfhTsi — Fortnite (@Fortnite) April 12, 2026 Samstarfið fer í loftið þann 16. apríl og þó ekki hafi verið greint frá öllum smáatriðum má búast við hefðbundnu Festival-innihaldi. Þar falla venjulega undir sérstök „skins“, emote, fylgihlutir…

Lesa meira

Lokakvöld GameTíví-deildarinnar í PUBG: Battlegrounds fór fram í gærkvöldi þar sem deildarmeistarar voru krýndir eftir fimm leikja keppni. Kvöldið markaði endapunkt á spennandi deildarkeppni þar sem liðin börðust um sæti í lokamótinu sem fram fer dagana 3. og 10. maí. PNGR stóð uppi sem sigurvegari deildarinnar með 750 stig eftir afar stöðuga frammistöðu. Omni fylgdi fast á eftir í öðru sæti og Hlandblettur hafnaði í því þriðja. Alls tryggðu 16 lið sér áframhald í keppninni. Þau lið sem komust áfram voru eftirfarandi: PNGR Omni Hlandblettur FresH Team Iceland KNGR NicCageFanClub 354esports Hraunbitar Ice-SaWaDee Oldies Göngudeildin Trúðalestin Trúðapestin Muffintop Prumpulestin CPK…

Lesa meira

Leikjaútgáfurnar hrannast upp í apríl og gera valið erfiðara með hverjum degi. Það er nóg á leiðinni, bæði stórir titlar og smærri leikir sem gætu stolið senunni. Óli hjá GameTíví fer yfir það helsta í nýju myndbandi og heldur sig við létta og skemmtilega nálgun. Þar færðu hraða yfirferð á því sem er að koma út og hvað gæti verið þess virði að setja á „wishlistann“ sem þú átt örugglega eftir að hunsa. Ef þú vilt fá yfirsýn án þess að kafa í endalausar útgáfulista, þá er þetta einföld og fín leið til að vera með á nótunum. Kannski finnurðu…

Lesa meira

Tomb Raider aðdáandi hefur sett heimsmet með stærsta tölvuleikjasafni sem tengist leikjaseríunni, samkvæmt Guinness World Records. Amy Dyson á nú stærsta safn Tomb Raider-tölvuleikja í heimi, alls 291 eintak. Safnið spannar fjölmargar útgáfur á mismunandi tungumálum og fyrir ólíkar leikjatölvur, þar á meðal Game Boy, PlayStation, Xbox og PC. Samkvæmt tilkynningu frá Guinness á hún jafnvel sömu leikina í mörgum útgáfum. Áhugi hennar á seríunni hófst snemma. „Ég byrjaði að spila Tomb Raider um sex ára aldur og fannst heillandi að sjá leik með kvenkyns aðalpersónu sem var sterk og sjálfstæð,“ segir Amy í samtali við Guinness. Hún bætir við…

Lesa meira

Næsta föstudagskvöld klukkan 19, munu áhorfendur Símans, sem fylgjast með rafíþróttum og aðrir sem fylgjast með á youtube eða Twitch, fá adrenalínbombu í æð þegar upp rennur úrslitaleikur í Úrvalsdeildinni í bridds. Matthías Imsland, framkvæmdastjóri Bridgesambands Íslands, mun sjálfur sjá um lýsingu á leiknum í beinni útsendingu og fá til sín gesti. Honum til aðstoðar við lýsinguna er Tryggvi Ingason, briddsspilari og sálfræðingur. Sveitir Grant Thornton og sveit Gunnlaugs Stefánssonar berjast um gullið. Báðar sveitir hafa unnið margar öflugar sveitir á leiðinni að úrslitarimmunni. Mótið hefur verið mjög skemmtileg viðbót við aðra bardaga í bridds og óvænt úrslit orðið.

Lesa meira

Íslenski Counter-Strike spilarinn Þorsteinn „TH0R“ Friðfinnsson er á leiðinni á stórmótið PGL Astana, en hann keppir þar með bandaríska liðinu Fisher College. PGL Astana er alþjóðlegt Counter-Strike mót sem fer fram í Astana, höfuðborg Kasakstan, þar sem bestu lið heims etja kappi um verðlaunafé upp á 1,6 milljónir Bandaríkjadala. Mótið hefst 9. maí og verður eitt af stærri viðburðum vorsins í rafíþróttaheiminum. Þorsteinn, sem er 25 ára gamall, hefur á undanförnum árum skapað sér nafn bæði hér heima og erlendis, en hann lék áður með íslenska liðinu Dusty áður en hann gekk til liðs við Fisher College. Listi þátttökuliða var…

Lesa meira

Cobblemon ISL samfélagið heldur sitt fyrsta páskamót sunnudaginn 5. apríl klukkan 21:00 og er ljóst að um spennandi viðburð er að ræða fyrir áhugafólk um Pokémon og Cobblemon. Mótið er opið öllum og verða engar takmarkanir á vali Pokémon, en öll Pokémon eru leyfileg í keppninni. Það opnar á meira svigrúm fyrir keppendur til að nýta sínar sterkustu Pokémon og prófa fjölbreyttar aðferðir. Í verðlaun verður veglegur vinningur, þar sem keppendur fá tækifæri á svokölluðu „spinning wheel“ þar sem hægt verður að vinna Legendary Pokémon á level 100. Nánari upplýsingar um mótið og skráningu má finna á Discord Cobblemon ISL…

Lesa meira