Author: Chef-Jack

Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

Um árabil hefur Menntaskólinn á Tröllaskaga átt í farsælu og metnaðarfullu samstarfi við skólann New College Lanarkshire í Skotlandi. Samstarfið á rætur sínar að rekja til Ecomedia Evrópuráðstefnu í Rúmeníu árið 2016, þar sem kastljósinu var beint að upplýsingatækni í skólastarfi og nýsköpun í kennsluháttum. Í kjölfarið sóttu kennarar MTR ráðstefnu til kollega sinna í Skotlandi og síðar komu fulltrúar NCL til Íslands þegar sambærileg Evrópuráðstefna var haldin hjá MTR. Tengslin hafa því styrkst jafnt og þétt á vettvangi kennara og stjórnenda. Þegar aðstoðarskólameistara MTR og einum kennara var boðið að sækja ráðstefnu hjá NCL á síðasta ári kviknuðu nýjar…

Lesa meira

Það var kannski ekki sjálfgefið að leið Sigurvalda Kára Björnssonar færi inn í heim rafíþrótta. Hann hefur gegnt stöðu verkefnastjóra hjá Rafíþróttasamband Íslands og hefur komið að stórum verkefnum á borð við endurvakningu Skjálfta og uppbyggingu á stúdíó- og miðlunarstarfi sambandsins. En sagan hefst annars staðar. Sigurvaldi er 21 árs, fæddur og uppalinn í Bolungarvík en búsettur í Reykjavík. Þegar hann er ekki í vinnuhlutverki lýsir hann sér sem fjöllistamanni. Hann hefur starfað á vettvangi sviðslista og kvikmyndagerðar og segir skapandi störf eiga stóran þátt í lífi sínu. Hann ver mestum tíma með eiginkonu sinni og syni, en auk þess…

Lesa meira

Hörð barátta og mikill keppnisandi einkenndi DUO mótið í PUBG: Battlegrounds sem fram fór um helgina, þar sem leikið var í FPP samkvæmt opinberum esports reglum leiksins. Alls tóku 21 lið þátt og var ljóst frá fyrstu lotu að barist yrði um hvert einasta stig. Skráningargjaldið var 1.000 krónur á lið og rann það óskipt beint í vinningspottinn. Skipting verðlauna var skýr og einföld. Fyrsta sæti hlaut 50 prósent af heildarupphæðinni, annað sæti 30 prósent og þriðja sæti 20 prósent. Með 21 lið meðal keppenda varð heildarupphæðin vegleg og stigataflan tók stöðugum breytingum allan keppnistímann. Sigurvegarar mótsins voru Ryksugurnar, skipaðir…

Lesa meira

Sannkölluð StarCraft hátíð verður haldin laugardaginn 7. mars klukkan 13:00 á rafíþróttamiðstöðinni Next Level Gaming í Egilshöll. Aðgangur er ókeypis og tölvur staðarins verða opnar öllum aðdáendum StarCraft sem vilja taka þátt, hvort sem er í keppni eða til að spila sér til skemmtunar. Á dagskránni er stefnt að því að krýna Íslandsmeistara í bæði StarCraft: Brood War og StarCraft II. Sigurvegarar mótanna hljóta verðlaunabikar og þar með formlegan titil Íslandsmeistara. Keppni í StarCraft: Brood War hefst klukkan 13:00 með 1v1 móti. Keppt verður í tveimur styrkleikaflokkum, annars vegar Chobos og hins vegar Gosus. Sá sem sigrar Gosus flokkinn verður…

Lesa meira

Ríkisstjórn Sádi Arabíu hefur samþykkt að breyta nafni Esports World Cup Foundation, samtakanna sem standa að baki Esports World Cup og Esports Nations Cup. Eftir breytinguna mun stofnunin bera heitið Esports Foundation. Á fundi ríkisstjórnar Sádi Arabíu fyrr í vikunni var samþykkt að gera formlega breytingu á skipulagsskrá stofnunarinnar. Þar með var nafni hennar breytt úr Esports World Cup Foundation í Esports Foundation. Breytingin fór fram án mikillar umræðu og var aðeins einn liður í annasömum fundi þar sem fjöldi samkomulaga og verkefna, bæði innanlands og á alþjóðavettvangi, hlaut samþykki. Ekki liggur fyrir hvenær nýja heitið verður tekið formlega í…

Lesa meira

Ævintýraleikurinn Echoes of the End frá íslenska leikjastúdíóinu Myrkur Games er nú aðgengilegur í PlayStation Plus fyrir Extra og Premium áskrifendur. Ásamt því hefur leikurinn fengið nýja uppfærslu, samhliða nýrri stiklu. Leikurinn hefur notið vinsælda á PlayStation, en er þetta í fyrsta sinn sem íslenskur tölvuleikur verður hluti af þessari áskriftarþjónustu. Þar geta áskrifendur þjónustunnar fengið aðgang að safni leikja gegn mánaðarlegu gjaldi, svipað og hjá streymisveitum sjónvarpsefnis, á borð við Netflix og Disney+. „Það að Echoes of the End sé kominn á PlayStation Plus er risastór áfangi fyrir okkur. Þetta gefur leiknum mikinn meðbyr, þar sem hann verður nú…

Lesa meira

FaZe Clan eru heimsmeistarar í Rainbow Six Siege annað árið í röð eftir sigur á Team Secret í úrslitaleik Rainbow Six Invitational 2026 sem fram fór á sunnudag síðastliðinn.  Með sigrinum verja þeir titilinn og festa sig enn frekar í sessi sem eitt sterkasta lið í sögu leiksins. Þetta er í fyrsta sinn í sögu Rainbow Six Siege sem lið tekst að verja Invitational titilinn. FaZe skrifa þar með nýjan kafla í sögubækurnar og hefja tímabilið 2026 á toppi heimslistans. HISTORY HAS BEEN FORGED🔨@FaZeEsports CLAIM THEIR SECOND HAMMER pic.twitter.com/yY5qgFNWIL — Rainbow Six Esports (@R6esports) February 15, 2026 Úrslitaleikurinn bar þess…

Lesa meira

DUO mót fer fram í PUBG: Battlegrounds föstudaginn 20. febrúar klukkan 20:00. Leikið verður í FPP samkvæmt esports reglum. Skráningargjald er 1.000 krónur á lið og rennur það óskipt beint í vinningspottinn. Fyrsta sæti fær 50 prósent, annað sæti 30 prósent og þriðja sæti 20 prósent af heildarupphæðinni. Mótið er opið bæði reyndum liðum og nýjum spilurum sem vilja reyna sig í skipulögðu keppnisumhverfi. Skráning fer fram hér og nánari upplýsingar má finna í Facebook hópnum Íslenska PUBG samfélagið.

Lesa meira

DeGen Rivals er nýr fríspilunarleikur fyrir PC og snjalltæki sem sameinar kart-kappakstur og Battle Royale í hraðskreiðri netringulreið fyrir allt að átta leikmenn. Leikurinn minnir á blöndu af Mario Kart 8 Deluxe og Fortnite, þar sem markmiðið er að vera síðasti bíllinn á hjólunum. Sögusviðið er furðuheimur skapaður af klikkuðum vísindamanni sem blandar saman DNA úr ólíklegustu hráefnum, þar á meðal pizzu, uppvakningum og köttum. Úr verða svokallaðir DeGens sem takast á í hröðum viðureignum með sprengivopnum, power-up hlutum og sérútbúnum farartækjum sem nýta eðlisfræðina til að klessa andstæðinga úr leik. Auk hefðbundins Battle Royale býður leikurinn upp á Demolition…

Lesa meira

Heroes of Newerth er í dag vart sjáanlegur á ratsjá rafíþrótta. Opinberir netþjónar lokuðu árið 2022 og flestir færðu sig yfir í aðra MOBA-leiki. En fyrir rúmum áratug var stemningin allt önnur. Árið 2013 fjölluðum við á esports.is um Malaysian National Championship í HoN þar sem Orange eSports tryggði sér sigur og tók heim 100.000 dollara í verðlaunafé. HoN er ekki lengur í fremstu röð rafíþrótta, en hann átti sitt gullna tímabil. Sjá einnig: 13 milljónir fyrir 1. sætið, ekki slæmt það Mynd: heroesofnewerth.com

Lesa meira