Counter-Strike hélt áfram að vera tekjuhæsta rafíþróttin árið 2025 þegar kemur að verðlaunafé. Samkvæmt gögnum frá Esports Charts var heildarverðlaunafé í Counter-Strike 2 mótum á árinu rúmar 32 milljónir Bandaríkjadala, sem jafngildir um 4,2 milljörðum króna miðað við grófan útreikning þar sem einn dalur nemur um 130 krónum.
Esports Charts bendir á að þetta samsvari 41,5 prósenta aukningu frá fyrra ári og endurspegli þéttara keppnisdagatal eftir innleiðingu Valve Regional Standings. Með breytingunum hafa mótahaldarar þurft að leggja meiri áherslu á verðlaunafé til að laða að lið, þar sem eldri samstarfslíkön hurfu að mestu. Af þeim sökum buðu aðilar á borð við BLAST, ESL og PGL mót með verðlaunafé sem fór iðulega yfir eina milljón dala, eða um 130 milljónir króna.
Did you see our list of the TOP esports games by prize pool in 2025? 💰
1⃣ @CounterStrike
2⃣ @DOTA2
3⃣ @HonorOfKingsIf you missed it you can check out the full report on our website 👇https://t.co/3cpRogwzKP pic.twitter.com/yLtclxpF8P
— Esports Charts 🇺🇦 (@EsportsCharts) December 21, 2025
Í öðru sæti listans var Dota 2. Þar stóð The International upp úr með um 2,3 milljónir dala í verðlaunafé, sem nemur tæplega 300 milljónum króna, en Esports World Cup fór fram úr því með um 390 milljónir króna í heildarverðlaun.
Þrátt fyrir mikla áhorfstölu var League of Legends neðar á listanum, þó verðlaunafé hafi vaxið hratt milli ára. Sama má segja um VALORANT, þar sem heildarverðlaunafé nam um 11,25 milljónum dala, eða um 1,46 milljörðum króna.
Í heildina stendur Counter-Strike enn í sérflokki hvað verðlaunafé varðar, þótt hluti aukningarinnar skýrist af breyttu fyrirkomulagi.
Mynd: escharts.com




