Verðlaunahátíðin Rafíþróttamaður ársins fór fram um helgina og þar voru kynntir sigurvegarar ársins 2026.
Árið einkenndist af sterkum frammistöðum íslenskra keppenda bæði innanlands og á alþjóðavettvangi.
Á verðlaunahátíðinni voru veitt verðlaun í flokkum Rafíþróttamanns ársins, Rafíþróttakonu ársins, Rafíþróttakarls ársins og Björtustu vonarinnar, auk Geita ársins í sex keppnisgreinum, að því er fram kemur í tilkynningu frá RÍSÍ.

Titilinn Rafíþróttamaður ársins 2026 hlaut Finnbjörn Flosi Jónasson, sem keppir undir nafninu „Finnsi“. Finnbjörn hefur átt afar sterkt tímabil með liðinu Virtus.Pro í Marvel Rivals.
Liðið hefur unnið fjölda sigra á árinu og í nóvember tryggði það sér sæti í úrslitum á heimsmeistaramótinu í greininni þar sem Virtus.Pro hafði betur gegn liðinu NAVI með 4–1 sigri.
Með þessum árangri skrifaði Finnbjörn sig í sögubækurnar sem fyrsti íslenski heimsmeistarinn í rafíþróttum.

Titilinn Rafíþróttakona ársins 2026 hlaut María Lísa Thomasdóttir, sem keppir undir nafninu „Maeja“.
María lék stórt hlutverk sem midlaner í liði Fenris í League of Legends síðasta haust, sigraði League of Legends mótið á Skjálfta í september og endaði í öðru sæti í úrslitakeppni KIA deildarinnar í vor.

Titilinn Rafíþróttakarl ársins 2026 hlaut Antonio Kristófer Salvador, sem keppir undir nafninu „Tony“.
Antonio átti afar sterkt tímabil í Counter-Strike og sigraði öll helstu mót ársins með liðinu Dusty, þar á meðal haust‑ og vormót Ljósleiðaradeildarinnar og Stórmeistaramót Ljósleiðarans í lok maí.

Titilinn Bjartasta vonin 2026 hlaut Brimir Leó Bjarnason, sem keppir undir nafninu „FH VELTRIC!“.
Brimir er ungur og efnilegur keppandi í Fortnite og hefur sýnt fram á framúrskarandi árangur, bæði í keppni við jafnaldra og gegn reyndari spilurum.
Hann er þegar farinn að byggja upp sterkt orðspor innan greinarinnar.
Geit ársins 2026
Titilinn Geit ársins 2026 hlutu sex leikmenn sem hafa skarað fram úr í sinni keppnisgrein innanlands og verið áberandi í mótum á liðnu tímabili.
Hér fyrir neðan má sjá Geitur ársins 2026:
Páll Minh Phuong Jakobsson „Legions“ — League of Legends
Antonio Kristófer Salvador „Tony“ — Counter‑Strike
Jon Ingvi Seljeseth „Ingmundur“ — Dota 2
Georg Rúnar Ingimarsson „Georg“ — Overwatch
Bjarni Þór Hólmsteinsson „Bjdn!“ — Rocket League
Adam Kelvin Krus „Wish XD“ — Fortnite
RÍSÍ óskar þessum frábæru rafíþróttafólki innilega til hamingju með titlana og afrekin!
Myndir: aðsendar



