Það verður bæði glæsilegt og létt í anda á vígvöllum PUBG á næstunni. Krafton hefur kynnt uppfærslu 37.1 fyrir PUBG: Battlegrounds á PC í dag, en uppfærslan verður gefin út á console 21. ágúst næstkomandi. Þar blandast saman lúxus og nostalgía: Bugatti ofurbílar, UGC Alpha leikjakerfið og endurkoma POBG.
PUBG hefur nú tekið lúxusbíla beint úr veruleikanum og inn á vígvöllinn. Bugatti Chiron og Chiron (Édition Spéciale) verða fáanlegir sem sérútgáfur af Coupe RB, með allt frá 14 litavali og fjórum innréttingum til sjö týpur af felgum og sjö tegundir af bremsuklossum.
Á spawn í kortunum Erangel, Miramar, Sanhok, Vikendi, Taego, Deston og Rondo birtast sérstakir gámar sem aðeins opnast fyrir þá sem eiga Bugatti-skin. Þar inni bíða bílarnir með sérsniðin nitrohljóð í Édition Spéciale. Þetta er ekki bara útlit, þetta er lúxus á hjólum í miðjum bardaga.
Nánari upplýsingar um nýjustu uppfærsluna er hægt að nálgast með því að smella hér.
POBG mætir aftur með nýju korti
Að lokum snýr POBG aftur í takmarkaðan tíma. Nú fylgir nýtt kort, Paramo, þar sem leikmenn takast á við bylgjur af kjúklingum í alvöru bardagaorustu. Til upprifjunnar er hægt að skoða hér youtube myndband af POBG sem margir ættu að muna eftir:
Myndir: pubg.com





