Mario Kart World heldur áfram að rúlla yfir sölulista Nintendo og hefur nú selst í yfir 14 milljónum eintaka frá útgáfu. Þetta kemur fram í uppgjöri Nintendo fyrir þriðja ársfjórðung rekstrarársins 2026, þar sem leikurinn er sagður langvinsælasti titillinn á nýjustu leikjatölvu fyrirtækisins.
Samkvæmt uppgjörinu hefur Mario Kart World selst í samtals 14,03 milljónum eintaka frá útgáfu. Enginn annar leikur á Nintendo kerfinu kemst í nánd við þessar tölur, en næsti titill á listanum er Donkey Kong Bananza sem hefur selst í 4,25 milljónum eintaka, þrátt fyrir að hafa komið út tæpum sex vikum síðar.
Til samanburðar hefur Nintendo Switch 2 selst í 17,37 milljónum eintaka frá útgáfu. Það þýðir að rúmlega þrír af hverjum fjórum eigendum tölvunnar eiga einnig Mario Kart World, sem undirstrikar hversu lykilhlutverki leikurinn gegnir í upphafi líftíma nýju vélarinnar.
Þrátt fyrir gríðarlega sterka byrjun á Mario Kart World enn langt í land með að ná sölumetum forvera síns. Mario Kart 8 Deluxe hefur selst í yfir 70 milljónum eintaka á líftíma sínum og heldur áfram að seljast vel á upprunalegu Nintendo Switch. Á yfirstandandi rekstrarári bættust þar við 2,39 milljónir eintaka til viðbótar.
Nintendo hefur gefið til kynna að nánari upplýsingar um stöðu Mario Kart World og annað sem kemur fram í uppgjörinu verði kynnt á næstu dögum. Ljóst er þó þegar að leikurinn hefur fest sig rækilega í sessi sem stærsta útgáfa Nintendo á nýju kynslóðinni hingað til.
Myndir: nintendo.com





