
Leikjaútgáfurnar hrannast upp í apríl og gera valið erfiðara með hverjum degi. Það er nóg á leiðinni, bæði stórir titlar og smærri leikir sem gætu stolið senunni.
Óli hjá GameTíví fer yfir það helsta í nýju myndbandi og heldur sig við létta og skemmtilega nálgun. Þar færðu hraða yfirferð á því sem er að koma út og hvað gæti verið þess virði að setja á „wishlistann“ sem þú átt örugglega eftir að hunsa.

Ef þú vilt fá yfirsýn án þess að kafa í endalausar útgáfulista, þá er þetta einföld og fín leið til að vera með á nótunum. Kannski finnurðu næsta leik til að fresta öllu öðru.
Hér að neðan má sjá myndbandið frá GameTíví:
Myndir: Steam / Aphelion / Samson



