Close Menu
    Nýjar fréttir

    Forsala á GTA VI fyrir PS5 og Xbox Series X/S hefst í næstu viku

    18.06.2026

    Aðgengi að rafíþróttum í brennidepli

    16.06.2026

    Leikjarinn leggur Twitch á hilluna eftir 15 ár

    14.06.2026

    Bancho snýr aftur í eldhúsið

    12.06.2026
    1 2 3 … 351 Next
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    esports.is
    • Forsíða
    • Tölvur og leikir
      • Íslenskt efni
      • Rafíþróttir
      • Mót framundan
      • Væntanlegt
      • Nintendo
      • PC leikir
      • Playstation
      • Xbox
    • Leikjarýni
      1. Leikjarýni
      Featured
      90

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      By Chef-Jack12.08.2025
      Recent
      9.0

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      12.08.2025
      7.0

      Leikjarýni: RC-leikurinn Recharge kemur á óvart

      07.08.2025
      5.0

      Leikjarýni: Tónlistin heillar, en leikurinn sjálfur nær ekki sömu hæðum – þarfnast enn talsverðrar yfirferðar

      30.06.2025
    • Auglýsa?
    • Um okkur
      • Hafðu samband
      • Auglýsa?
      • Fréttabréf
      • Um vefinn
      • Íslenskar Fb grúppur
    • Klönin
      • Klön yfirlit
      • Dusty
      • Oldies Samsteypan
    • is
      • is
      • en
    esports.is
    Home»Tölvuleikir»Pixelwear.is tengir saman nörda- og leikjasamfélög landsins
    Pixelwear.is
    Tölvuleikir

    Pixelwear.is tengir saman nörda- og leikjasamfélög landsins

    By Chef-Jack27.03.2026Updated:08.04.20262 Mins Read
    Share
    Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    Pixelwear.is
    Mynd: Skjáskot af vefnum Pixelwear.is

    Ný íslensk vefverslun ætluð tölvuleikja- og nördasamfélaginu er að líta dagsins ljós á næstu dögum undir nafninu Pixelwear.is. Verkefnið er samfélagsdrifið framtak sem hefur það að markmiði að sameina ólík íslensk gaming-samfélög á einum vettvangi og gefa þeim tækifæri til að bjóða upp á sinn eigin varning án þess að þurfa að sjá um framleiðslu, lagerhald eða sölu.

    Hugmyndin að baki Pixelwear er einföld en metnaðarfull. Samfélög geta hannað og sett í sölu eigin vörur á vefnum og fá í staðinn hlutdeild í hagnaði. Með þessu verður til sameiginlegur markaður þar sem íslensk gaming-menning fær aukið vægi og sýnileika, á sama tíma og samfélögin styrkjast fjárhagslega.

    Stefnt er að því að vefverslunin verði lifandi og síbreytilegur vettvangur þar sem nýjar vörur bætast reglulega við. Þar má búast við bæði klassískum varningi og takmörkuðum útgáfum sem tengjast viðburðum, mótum og öðrum stórviðburðum í íslensku rafíþrótta- og leikjasenunni.

    Pixelwear.is er þegar komið vel á veg og stendur til að opna vefverslunina næsta miðvikudag. Aðstandendur leggja áherslu á að um sé að ræða meira en hefðbundna netverslun. Markmiðið er að byggja upp samfélagslegan vettvang þar sem ólík hópstarf innan íslensks leikjaheims getur tengst, vaxið og stutt hvert annað.

    Mynd: Skjáskot af vefnum Pixelwear.is

    GameTíví Íslenska Gran Turismo samfélagið Íslenskt efni picks Pixelwear.is TÍK - Tölvuleikjasamfélag íslenzkra kvenna Tölvuleikjaspjallið - Facebook
    Share. Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    Chef-Jack

    Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

    Tengdar færslur

    Forsala á GTA VI fyrir PS5 og Xbox Series X/S hefst í næstu viku

    18.06.2026

    Leikjarinn leggur Twitch á hilluna eftir 15 ár

    14.06.2026

    Bancho snýr aftur í eldhúsið

    12.06.2026

    Dusty tryggði sér Stórmeistaratitil Ljósleiðarans

    29.05.2026
    Við mælum með

    Þorsteinn „TH0R“ Friðfinnsson mætir á PGL Astana

    04.04.2026

    Íslenskur Cobblemon server opnaður fyrir Minecraft aðdáendur

    28.03.2026

    Pixelwear.is tengir saman nörda- og leikjasamfélög landsins

    27.03.2026

    Íslendingurinn Torfi Frans: „Minecraft World er mikilvægt skref“

    22.03.2026
    1 2 3 … 10 Next
    Mest lesið
    • Grand Theft Auto: VI
      Forsala á GTA VI fyrir PS5 og Xbox Series X/S hefst í næstu viku
      18.06.2026
    • Rafíþróttasamband Íslands - RÍSÍ - Logo
      Aðgengi að rafíþróttum í brennidepli
      16.06.2026
    Leikjarýni í vinnslu

    12. ágúst 2025
    Nýjasta leikjarýnin komin út: Echoes of the End

    7. ágúst 2025
    Nýleg leikjarýni: Recharge.

    30. júní 2025
    Nýleg leikjarýni: The Book of Aaru.

    Fleiri leikjarýni hér.

    esports.is
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    • Forsíða
    • Auglýsa
    • Tölvuleikir
    • Um vefinn

    Type above and press Enter to search. Press Esc to cancel.