Ný uppfærsla, Update 40.2, er komin í tölvuleikinn PUBG: Battlegrounds þar sem leikurinn fagnar níu ára afmæli sínu með ýmsum viðburðum og breytingum. Uppfærslan kom í dag, 11. mars, á PC en verður gefin út á PlayStation 5 og Xbox Series X/S þann 19. mars.
Veislan hefst áður en leikurinn byrjar
Afmælisstemningin setur svip sinn á vígvellina. Á byrjunareyjum allra korta hefur verið komið fyrir sérstakri 9 ára afmælisstyttu. Spilarar geta kastað svokallaðri holographic stun sprengju í styttuna áður en leikur hefst og eftir að hafa hitt styttuna nokkrum sinnum breytist hún í útlit persónu spilarans. Þá mun einnig drónasýning lýsa upp himininn til að fagna afmælinu.
Leitin að Chicken Man hefst
Á kortinu Rondo hefur verið bætt við sérstökum afmælisviðburðum. Þar geta spilarar elt uppi dularfullan Chicken Man og fengið svokallað Lucky Egg í verðlaun. Eggin geta veitt tilviljunarkennda hluti úr safni af þrettán verðlaunum, þar á meðal vopn, Level 3 búnað og sérstakan afmælis felubúning (ghillie).
Secret Rooms fá nýtt hlutverk
Uppfærslan felur einnig í sér ýmsar breytingar á kortinu Vikendi, þar sem læstar hurðir sem áður þurfti kúbein til að opna hafa verið fjarlægðar og nýjum hlutum hefur verið bætt í svokölluð Secret Rooms. Auk þess hafa ýmsar breytingar verið gerðar á loot-dreifingu og ýmsum leikstillingum, auk fjölda villuleiðréttinga.
Aston Martin snýr aftur
Breski lúxusbílaframleiðandinn Aston Martin snýr nú aftur í PUBG: Battlegrounds. Bílamerkið verður á ný hluti af svokallaðri Workshop-verslun leiksins þar sem spilarar geta nálgast sérstakt efni tengt merkinu.
Samhliða uppfærslunni geta spilarar einnig fengið ókeypis Event Pass, „All Day Party“, sem veitir sérstök afmælisverðlaun á meðan hátíðarhöldin standa yfir.
Allar nánari upplýsingar um uppfærsluna má finna með því að smella hér.
Streamerinn C Dome fer yfir helstu atriði uppfærslunnar í myndbandinu hér að neðan.
Kynningarstikla fyrir nýjustu uppfærsluna
Myndir: pubg.com









