Rafíþróttasamband Íslands (RÍSÍ) stendur nú fyrir alþjóðlegri könnun sem miðar að því að greina hvernig stafræn tækni, svo sem sýndarveruleiki (VR), hefur áhrif á andlega heilsu ungs fólks. Könnunin er hluti af verkefninu DIGI-MENTAL, sem RÍSÍ leiðir í samstarfi við samtök og rannsóknaraðila frá Belgíu, Spáni og Ítalíu.
Markmið verkefnisins er að þróa gagnleg stafræn úrræði og verkfæri sem styðja við andlega vellíðan ungs fólks. Könnunin tekur einungis um 10 mínútur og er svarendum full nafnleynd tryggt. Þátttakendur eru sérstaklega hvattir til að segja frá eigin upplifun og skoðunum — því rödd þeirra skiptir máli.
Spurt er m.a. um:
Hvort viðkomandi eigi í erfiðleikum með einbeitingu, streitu eða félagsleg samskipti.
Notkun stafrænnar tækni og áhrif hennar á daglegt líf.
Verkefnið snertir á mikilvægum spurningum um stafræna menningu, sérstaklega í ljósi ört vaxandi þátttöku ungs fólks í tölvuleikjum, netmenningu og rafíþróttum.
Meðal samstarfsaðila DIGI-MENTAL eru:
Backslash – Spánn
Connect International – Belgía
Become Hub – Ítalía
Ungt fólk hvatt til þátttöku
RÍSÍ hvetur ungt fólk á Íslandi, sérstaklega þá sem tengjast stafrænum heimi og rafíþróttum, til að taka þátt í könnuninni.
„Við hjá RÍSÍ erum að vinna verkefni sem skoðar notkun á VR – okkur langar endilega heyra frá þér,“
segir í tilkynningu sambandsins.
Könnunina má finna með því að smella hér.
Mynd: connect-international.org




