Það er nóg um að vera hjá PUBG samfélaginu þessa dagana. Fjölbreytt dagskrá einkennir næstu vikur með spennandi mótum, LAN-kvöldi og umfangsmikilli uppfærslu frá KRAFTON sem breytir leikupplifuninni á áhrifaríkan hátt.
Hér er yfirlit yfir það helsta:

354 eSports sigraði helgarmótið
Á sunnudaginn fór fram mót á vegum Íslenska PUBG samfélagsins þar sem 16 lið tóku þátt, þó að upphaflega hafi verið stefnt að 18 liðum.
Keppnin reyndist bæði spennandi og vel skipulögð og stóð lið 354 eSports uppi sem sigurvegari. Þeir komu, sáu og sigruðu – og vöktu athygli fyrir öflugan leik og gott skipulag innan liðsins.
Skráning hafin í síðasta formlega mótið fyrir sumarið
Næsta formlega mótið fer fram þann 1. júní og er nú opið fyrir skráningu. Þetta verður síðasta skipulagða mótið fyrir sumarfrí, þannig að áhugasamir leikmenn ættu ekki að láta þetta fram hjá sér fara.
Skráningarfrestur: Rennur út 31. maí kl. 18:00
Keppnisgjald: 4000 krónur á lið
Skráning: Fer fram í þessu skjali
Lið eru einnig hvött til að uppfæra eða bæta sig inn í magma-skjölin, sem verða í meiri notkun en áður.
Ef leikmenn lenda í vandræðum við skráningu eða tæknileg atriði er bent á að hafa samband við Arnari Loga (ALB_McO á Discord), í Facebook grúppu Íslenska PUBG samfélagsins.
Next Level blæs til LAN-kvölds með Duo móti
Next Level Gaming, einn af helstu bakhjörlum PUBG samfélagsins á Íslandi, stendur fyrir LAN-kvöldi þann 24. maí kl. 18:00.
Þar verður haldið DUO-mót með skemmtilegum verðlaunum í boði og svo tekur við kvöld af PUBG-gleði fyrir alla þátttakendur.
Hámarksfjöldi: 48 leikmenn (opið fyrir gesti ef ekki fyllist)
Verð: 3.990 krónur á mann
Skráning: Fer fram í þessu skjali
Happy Hour: Frá kl. 18:00 til 21:00
Viðburðurinn lofar góðri stemningu, spennandi keppni og félagslegri skemmtun þar sem áhugafólk um PUBG hittist í eigin persónu.
Stór uppfærsla 35.2 gefin út
KRAFTON hefur sent frá sér stórt uppfærslupakkann 35.2 fyrir PUBG: Battlegrounds á PC, með nýjungum sem geta haft mikil áhrif á taktík og spilun. Mesta athygli vekur að nú geta leikmenn breytt landslagi kortsins Taego í rauntíma með sprengiefnum og öðrum völdum vopnum.
Helstu nýjungar:
Landslagið í Taego: Leikmenn geta nú mótað umhverfi sitt með handsprengjum, mortérum, Panzerfaust, C4, pickaxe, sprengingum frá farartækjum og eldflaugum úr rauðu svæðunum.
C4 breyting: Nú þarf að setja C4 niður með fjögurra sekúndna uppsetningu í stað þess að kasta því.
Gúmmibátur: Uppblásni báturinn er nú hraðari og tekur minna pláss í bakpokanum.
Flare Gun: Bætt viðmót og skýrari upplýsingar gera byssuna aðgengilegri.
Sjálfsalar (Vending Machines): Nýir sjálfsalar fyrir plástra og First Aid sett hafa verið settir á Erangel og Taego.
Camouflage fyrir farartæki: Nýtt Camo-net sem gerir leikmönnum kleift að fela farartæki sín betur.
Þessar breytingar eru þó ekki virkar í Esports-mótum. Uppfærslan er nú aðgengileg á PC og verður fáanleg á öðrum leikjatölvum frá og með 22. maí. Uppfærslan er hluti af stærri áætlun KRAFTON fyrir árið 2025 sem miðar að samræmingu leikupplifunar á milli korta.
Frekari upplýsingar um uppfærsluna má nálgast á vefsíðu PUBG: Battlegrounds.
Myndband: Uppfærslu 35.2 yfirlit
CampEasy styrkir Íslandsmót Gametíví – sigurvegararnir fara í road trip!
Ferðaævintýrin kalla! CampEasy Iceland hefur bæst í hóp styrktaraðila Íslandsmótsins í vetur og ætlar að láta þetta verða alvöru – bæði á mótinu og eftir það.
Sjá einnig: Íslandsmót Gametíví
Sigurvegararnir fá til umráða tvo Easy Clever 4×4 húsbíla í fimm daga, fullkomna ferðafélaga til að bruna um landið að vetri, vori eða hausti. (Vinningurinn gildir utan háannar: júní, júlí, ágúst og september.)
Ef sigurliðið langar að lengja ferðalagið – og hver vill það ekki? – þá býður CampEasy 50% afslátt af viðbættum dögum. Með í pakkanum fylgja premium tryggingar, svo það er ekkert sem stoppar draumaferðina.
Við segjum bara: Lyklar, bensín og góðir félagar – Ísland bíður.
Myndir: Íslenska PUBG samfélagið – www.campeasy.com – www.pubg.com