Í dag kynnir íslenska tölvuleikjafyrirtækið CCP loksins nýja leikinn EVE Frontier, sem deilir stórum hluta söguheimsins með sígilda EVE Online frá árinu 2003.
Leikurinn, sem hefur verið í þróun í höfuðstöðvum CCP í Vatnsmýrinni síðastliðin þrjú ár, er sagður tímamótaverk í íslenskri tölvuleikjagerð, sérstaklega þar sem hér er lögð áhersla á stafrænt hagkerfi byggt á bálkakeðjutækni (e. Blockchain) – fyrsti íslenski leikurinn til að nýta slíkt kerfi.
Nánari umfjöllun er hægt að lesa á visir.is hér.
Heimasíða leiksins: www.evefrontier.com
Mynd: evefrontier.com