Tölvuleikjaaðdáendur um allan heim nýttu sér tækifærið þegar Steam bauð upp á Steam Next Fest, dagana 10. – 17. júní.
Þar fengu milljónir spilara tækifæri til að prófa fjölbreytt úrval af nýjum og væntanlegum leikjum – og voru það kynningarútgáfur (e. demos) 50 leikja sem vöktu hvað mesta athygli á meðal þátttakenda í ár.
Þúsundir leikja – og 50 sem stóðu upp úr
Steam Next Fest býður upp á einstakt tækifæri til að kynna sér væntanlega titla beint frá leikjaframleiðendum – ókeypis. Þróunaraðilar setja þar fram tölvuleikja-útgáfur sem sýna fyrstu drög af leikjum sem eiga eftir að koma út á næstu mánuðum. Í kjölfar viðburðarins hefur Valve birt lista yfir 50 mest spiluðu leikin byggt á fjölda einstaka spilara sem sóttu og spiluðu demóin á viðburðinum.
Listinn gefur sterka vísbendingu um hverjir eru líklegir til að slá í gegn þegar þeir koma út, og dregur jafnframt fram nýstárlegar hugmyndir, óvænta verðuga athygli og einstaka blöndu nýliða og reyndra nafna í leikjaiðnaðinum.
Smellið hér til að skoða listann.
Mynd: Steam