Close Menu
    Nýjar fréttir

    Ljósleiðarinn áfram aðalstyrktaraðili Ljósleiðaradeildarinnar

    23.06.2026

    Forsala á GTA VI fyrir PS5 og Xbox Series X/S hefst í næstu viku

    18.06.2026

    Aðgengi að rafíþróttum í brennidepli

    16.06.2026

    Leikjarinn leggur Twitch á hilluna eftir 15 ár

    14.06.2026
    1 2 3 … 351 Next
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    esports.is
    • Forsíða
    • Tölvur og leikir
      • Íslenskt efni
      • Rafíþróttir
      • Mót framundan
      • Væntanlegt
      • Nintendo
      • PC leikir
      • Playstation
      • Xbox
    • Leikjarýni
      1. Leikjarýni
      Featured
      90

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      Chef-Jack12.08.2025
      Recent
      9.0

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      12.08.2025
      7.0

      Leikjarýni: RC-leikurinn Recharge kemur á óvart

      07.08.2025
      5.0

      Leikjarýni: Tónlistin heillar, en leikurinn sjálfur nær ekki sömu hæðum – þarfnast enn talsverðrar yfirferðar

      30.06.2025
    • Auglýsa?
    • Um okkur
      • Hafðu samband
      • Auglýsa?
      • Fréttabréf
      • Um vefinn
      • Íslenskar Fb grúppur
    • Klönin
      • Klön yfirlit
      • Dusty
      • Oldies Samsteypan
    • is
      • is
      • en
    esports.is
    Forsíða»Tölvuleikir»Prince of Persia-remake fimm árum á eftir áætlun
    Prince of Persia-remake fimm árum á eftir áætlun - Prince of Persia: The Sands of Time
    Listaverk frá Ubisoft sem sýnir mögulegt sögusvið leiksins.
    Tölvuleikir

    Prince of Persia-remake fimm árum á eftir áætlun

    Chef-Jack18.06.20253 mín lestur
    Deila
    Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link

    Prince of Persia-remake fimm árum á eftir áætlun - Prince of Persia: The Sands of Time

    Þrátt fyrir langvarandi þögn og vangaveltur um örlög endurgerðar Prince of Persia: The Sands of Time hefur Ubisoft nú staðfest að þróun leiksins heldur áfram af fullum krafti.

    Í stuttri færslu á opinberum samfélagsmiðlum Prince of Persia-seríunnar þann 16. júní kemur fram að þróunarteymið hjá Ubisoft Montréal sé „djúpt sokkið“ í vinnu við leikinn.

    Yep, we’re still deep in the game — exploring, building, and ensuring the sands move with purpose. 🗡️⏳

    This game is being crafted by a team that truly cares, and they’re pouring their hearts (and a lot of coffee) into every step.

    Thank you for sticking with us. 💖 pic.twitter.com/9bKjZHjmur

    — Prince of Persia™ (@princeofpersia) June 16, 2025

    „Við erum að kanna, byggja og tryggja að sandurinn dansar í takt við sögu og tilgang,“

    segir í færslunni, þar sem einnig er vísað til mikillar eljusemi og fjölda kaffibolla sem hafi runnið til verkefnisins.

    Fjarlæg framtíð í sjónmáli

    Endurgerðin var upphaflega kynnt til leiks árið 2020 með útgáfuáætlun snemma árs 2021. Fljótlega fór þó að bera á gagnrýni á gæði leiksins, og árið 2022 var þróuninni formlega komið í hendur Ubisoft Montréal. Þar ákvað nýtt teymi að hefja verkefnið upp á nýtt frá grunni.

    Síðan þá hefur fátt heyrst af leiknum, og engar fréttir bárust um hann á nýafstaðinni kynningu Ubisoft á Summer Game Fest 2025. Langvarandi þögn af hálfu Ubisoft ýtti undir vangaveltur um að verkefninu hefði verið hætt, en nýjustu yfirlýsingar Ubisoft sönnuðu hið gagnstæða.

    Staðfest útgáfuáætlun fyrir árið 2026

    Samkvæmt tilkynningu Ubisoft er áætlað að leikurinn komi út fyrir lok mars 2026, sem þýðir að hann verður hluti af fjárlagaári fyrirtækisins 2025–2026. Þetta staðfestir að verkefnið er langt frá því að vera slegið af.

    Leikurinn er þó enn án nákvæmrar útgáfudagssetningar, og að sögn talsmanna Ubisoft verður ekkert sýnt úr honum fyrr en þróun leiksins hefur náð því stigi að unnt er að sýna hann opinberlega.

    Prince of Persia-remake fimm árum á eftir áætlun - Prince of Persia: The Sands of Time
    Listaverk frá Ubisoft sem sýnir mögulegt sögusvið leiksins.

    Þróun Prince of Persia: The Sands of Time-remake hefur verið löng og viðburðarík. Upphaflega var leikurinn unninn af Ubisoft-stúdíóunum í Pune og Múmbæ á Indlandi. Gagnrýni á myndefni og tækni leiksins varð til þess að fyrirtækið færði verkefnið yfir til höfuðstöðvanna í Montréal – sama teymi og þróaði Prince of Persia-trílógíuna á sínum tíma.

    Síðan þá hefur lítið verið sýnt, en orðalag Ubisoft nú bendir til þess að markmiðið sé að búa til metnaðarfulla og vandaða útgáfu sem standi undir væntingum aðdáenda.

    Ubisoft virðist ætla sér að gera endurgerð Prince of Persia: The Sands of Time að verðugum arftaka upprunalega leiksins frá 2003. Þrátt fyrir seinkun og breytingar á þróunarteymi stendur fyrirtækið við verkefnið – og vonir standa til að aðdáendur fái loks að snúa aftur til sandanna fyrir lok ársins 2026.

    Prince of Persia: The Sands of Time -remake mun koma út á PlayStation, Xbox og PC.

    Myndir: x.com / Prince of Persia og skjáskot úr myndbandi

    Incoming PC leikur PlayStation Prince of Persia: The Sands of Time Ubisoft Xbox
    Deila Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    Chef-Jack

    Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

    Tengdar færslur

    Forsala á GTA VI fyrir PS5 og Xbox Series X/S hefst í næstu viku

    18.06.2026

    Leikjarinn leggur Twitch á hilluna eftir 15 ár

    14.06.2026

    Bancho snýr aftur í eldhúsið

    12.06.2026

    Nexus lokar í Kringlunni og Pedro fagnar

    25.05.2026
    Við mælum með

    Þorsteinn „TH0R“ Friðfinnsson mætir á PGL Astana

    04.04.2026

    Íslenskur Cobblemon server opnaður fyrir Minecraft aðdáendur

    28.03.2026

    Pixelwear.is tengir saman nörda- og leikjasamfélög landsins

    27.03.2026

    Íslendingurinn Torfi Frans: „Minecraft World er mikilvægt skref“

    22.03.2026
    1 2 3 … 10 Next
    Mest lesið
    • Grand Theft Auto: VI
      Forsala á GTA VI fyrir PS5 og Xbox Series X/S hefst í næstu viku
      18.06.2026
    • Ljósleiðarinn áfram aðalstyrktaraðili Ljósleiðaradeildarinnar
      Ljósleiðarinn áfram aðalstyrktaraðili Ljósleiðaradeildarinnar
      23.06.2026
    Leikjarýni í vinnslu

    12. ágúst 2025
    Nýjasta leikjarýnin komin út: Echoes of the End

    7. ágúst 2025
    Nýleg leikjarýni: Recharge.

    30. júní 2025
    Nýleg leikjarýni: The Book of Aaru.

    Fleiri leikjarýni hér.

    esports.is
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    • Forsíða
    • Auglýsa
    • Tölvuleikir
    • Um vefinn

    Sláðu inn leitarorð hér að ofan og smelltu á Enter til að leita. Smelltu á Esc til að hætta við.