Author: Chef-Jack
Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]
Goichi Suda, betur þekktur sem Suda51, stendur við stóru orðin. Eftir að hafa lofað fersku myndefni úr nýjasta leiknum sínum þann 4. desember, bætti hann ekki aðeins í heldur staðfesti einnig útgáfudag Romeo Is A Dead Man. Samkvæmt tilkynningu mun leikurinn koma út 11. febrúar 2026. Hann verður aðgengilegur á PlayStation 5, Xbox Series X|S og Steam. Suda51 leyfði sér að hnýta svolítið í tiltekið árið 2026 þegar hann opinberaði dagsetninguna og sagði að Grasshopper hefði unnið sitt „game of chicken“ gegn „hóstnefnumenginnöfn“ ákveðnum stórleik sem hefur tafist tvisvar. Að hans sögn var aldrei ætlunin að gefa leikinn út í…
StarLadder heldur sinn glæsilega viðburð í miðri Búdapest þar sem seinni CS2 Major ársins 2025 fer fram. Áður en bestu lið heims mæta í MVM Dome, verða tveir fulltrúar íslenska esports samfélagsins þegar mættir í borgina. Icenosi og Kassi leggja af stað til Búdapest og ætla að lifa og hrærast í stemmningunni, taka áhorfendur með sér á hverju skrefi og bjóða upp á IRL-streymi daglega frá borginni, mótinu og öllu því sem gerist á bak við tjöldin. Frá 11. til 15. desember verður strákanna að finna í beinni á twitch.tv/icenosi, þar sem þeir sýna ferðalagið, stemmninguna á götunum, viðbrögðin fyrir…
Strákarnir úr GAMETÍVÍ stilla sér upp aftur í kvöld og taka höndum saman í fyrsta sinn í nýjustu útgáfu Call of Duty seríunnar, Black Ops 7. Þeir ætla að skyggnast inn í leikinn, prófa nýjar aðferðir og reyna að finna taktík sem skilar þeim þremur sigrum, eins og þeir orðuðu það sjálfir, auðvitað með fullu sjálfstrausti. Bein útsending hefst klukkan 20.00 á www.twitch.tv/gametiviis, þar sem áhorfendur geta fylgst með fyrstu skrefunum, upplifað stemmninguna, keppnisskapið og óvæntu augnablikin á meðan þeir streyma. Þetta stefnir í kvöld þar sem fjör, samkeppni og góðar uppákomur halda áhorfendum á tánum.
Íslandsmeistaramótið í PUBG: Battlegrounds fór fram um helgina, dagana 6. og 7. desember, þar sem sterkustu lið landsins mættust í hörkubaráttu um titilinn. Mótið hófst í ágúst með umfangsmikilli deildarkeppni og komust 15 efstu liðin áfram í úrslitin sem nú hafa lokið með eftirminnilegum sigri Omni. Steypa og Snapster sáu um lýsingar og leiddu áhorfendur í gegnum hvert móment keppninnar, en beint streymi var á Twitch-rás GameTíVí sem hefur fest sig í sessi sem helsti vettvangur íslenska PUBG-samfélagsins. Áhorfendur fengu þannig lifandi innsýn í þróun mótsins þar sem taktík, útsjónarsemi og samheldni liða skiptu sköpum. Leikið var á kortunum Rondo,…
Slagsmálaleikurinn 2XKO, nýjasta útspil Riot Games sem byggir á persónum og heimi League of Legends, er á leiðinni á console í janúar 2026. Leikurinn hefur hingað til aðeins verið aðgengilegur á PC í Early Access útgáfu en hefur vakið mikla athygli hjá bardagaleikjasamfélaginu. Riot staðfesti útgáfudag tölvuútgáfunnar í upphafi nýs uppfærslumyndbands sem birt var í dag. Þar kom fram að 2XKO verður fáanlegt á PS5 og Xbox Series X|S strax í janúar 2026 og spilarar geta nú þegar sett hann á óskalista sína. Fyrirtækið hefur áður staðfest að leikurinn styðji cross-platform progression þannig að framvinda flyst milli kerfa þegar leikurinn…
Þróunarteymið á bak við Code Violet tilkynnti í frradag að leikurinn sé kominn á það stig að lokagerð hans sé tilbúin og útgáfuferlið hafið. Samhliða gleðifréttunum fylgdu þó nokkrar skýringar á tæknilegum vandamálum sem komu upp á síðari stigum og höfðu áhrif á kynningaráætlunina. Á meðan á vottunarferlinu stóð komu upp þrálát vandamál sem snéru að réttindum og opnun aukahluta fyrir forpöntunar- og Deluxe útgáfur leiksins. Fjórir þróunaraðilar unnu langar vaktir vikum saman við að finna lausn, sem leiddi til þess að birting leiktraila, kynningarefnis og rýnikóða seinkaði. Teymið stóð á endanum frammi fyrir tveimur leiðum. Að fresta útgáfunni um…
Íslandsmeistaramót PUBG hefst um helgina. Laust sæti í mótið eftir óvænt forföll HotDrop
Stóra stundin er runnin upp því Íslandsmeistaramótið í PUBG fer fram nú um helgina, dagana 6. og 7. desember, og hefst keppni klukkan 20 báða dagana. Um er að ræða hápunkt vetrarins hjá íslenska PUBG-samfélaginu og allt stefnir í spennandi og jafna baráttu. Horfðu á í beinni Beint streymi verður á Twitch-rás GameTíVí sem hefur á undanförnum misserum sýnt svart á hvítu að íslenskt PUBG-samfélag er í blóma. Nú tekur við lokaslagurinn þar sem sterkustu lið landsins mætast í úrslitum. Vegna forfalla hjá HotDrop opnaðist pláss fyrir eitt lið til viðbótar og þurfa áhugasamir að vera snöggir þar sem skráningu…
Nýr spilasalur fyrir tækninörda, ævintýralanga og forvitna leikjaunnendur opnar í dag við Grensásveg 16. Þar stendur VRWorld nú tilbúið með ferskan sýndarveruleika, klassíska arcate stemningu og tæknilausnir sem ætla sér að blása nýju lífi í afþreyingarmenningu borgarinnar. Áherslan hjá VRWorld er skýr, það á að bjóða upp á upplifun sem hverfur ekki úr minni. Á staðnum má finna háþróaðar VR-arenur, hreyfikerfi sem bregðast við hverri hreyfingu og búnað sem á að draga leikmann beint inn í nýjan heim. Þeir sem kjósa eitthvað léttara geta hoppað í klassíska arcade-leiki sem minna á gullaldarskeið spilasalanna, þar sem það fyrsta sem grípur mann…
Total War snýr aftur til upprunans. Medieval 3 staðfest í tilefni 25 ára afmælis seríunnar
Creative Assembly hefur opinberað Total War: Medieval 3 og staðfest að sagan færist aftur til hinnar sögulegu uppruna sem gerði leikjaseríuna að risanum sem hún er í dag. Tilkynningin markar upphaf afmælisárs Total War sem fagnar 25 árum frá útgáfu fyrsta leiksins. Síðasti Medieval-leikurinn kom út árið 2006 og hefur stúdíóið síðan ferðast um fjölbreytt tímabil og heimsveldi, allt frá fornu Egyptalandi í Total War, Pharaoh til þríleikja byggða á Warhammer-heiminum. Nú snýr kjarni hugmyndafræðinnar aftur til miðalda og lýsir Creative Assembly Medieval 3 sem hinum fullkomna miðaldaleikheim þar sem leikmenn eiga að sökkva sér dýpra inn í tímann en…
T1: „Við erum tilbúnir“ ef Elon Musk þorir að gera League of Legends einvígið að veruleika
Elon Musk vakti mikla athygli á X þegar hann setti fram óvænta áskorun. Hann vill sjá Grok 5, nýjustu útgáfu gervigreindarkerfisins hans, mæta sjálfum T1, einu sterkasta liði leikjasögunnar, í beinum og óbreyttum League of Legends bardaga. Elon Musk lagði áherslu á að Grok 5 yrði ekki í yfirburðastöðu heldur þyrfti að spila við sömu skilyrði og manneskja. Kerfið myndi aðeins fá upplýsingar í gegnum myndavél sem líkir eftir mannlegu sjónarhorni og bæði viðbragðstími, ákvarðanahraði og smelligeta yrðu stillt innan hins mannlega ramma. Let’s see if @Grok 5 can beat the best human team @LeagueOfLegends in 2026 with these important…
