Author: Chef-Jack
Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]
Eftir rúmlega tuttugu ára viðveru á sviði Counter-Strike hafa stjórnendur bandaríska félagins Complexity ákveðið að hætta keppni í CS2. Ástæðan er sögð fjárhagslegur þrýstingur sem hefur gert reksturinn óviðráðanlegan. Félagið var stofnað árið 2003 og hóf keppni í Counter-Strike árið 2004. Á þessum tveimur áratugum hefur liðið unnið til margvíslegra verðlauna og sigra í stórmótum. Þar má nefna sigurinn í BLAST Premier Spring 2020 European Finals skilaði Complexity 335 þúsund Bandaríkjadölum sem samsvarar um það bil 46,2 milljónum íslenskra króna. Complexity tók þátt í fjölmörgum CS2 mótum á þessu ári, þar á meðal á IEM Katowice, Melbourne, Cologne og PGL…
„Þetta er í þriðja sinn sem ég held þetta námskeið,“ segir Tómas og bendir á stöðuga eftirspurn eftir námskeiðum fyrir lýsara í rafíþróttum (myndir)
Rafíþróttasamband Íslands (RÍSÍ) stóð nýverið fyrir námskeiði í rafíþróttalýsingu, svokölluðu „casting“, sem ætlað er þeim sem vilja bæta sig sem lýsendur í rafíþróttum. Á námskeiðinu var farið yfir margvíslega þætti, allt frá undirbúningi og frammistöðu lýsanda til stjórnar sýninga, hlutverks lýsenda og viðtala. Námskeiðið fór fram í húsnæði Rafmenntar við Stórhöfða 27 í Reykjavík og kostaði 19.900 krónur. Að þessu sinni tóku fimm manns þátt, en samkvæmt Tómasi Jóhannssyni, yfirlýsanda í Counter-Strike hjá RÍSÍ, hefur alltaf verið góð aðsókn að námskeiðinu sem nú fór fram í þriðja sinn. „Það sem vakti mesta lukku var undirbúningurinn. Námskeiðið er uppbyggt til að…
TFCL og Quick Esports League hafa tilkynnt að önnur útgáfa af Post-Season Cup í Team Fortress 2 fari fram dagana 5. til 7. september 2025. Keppnin er opin öllum leikmönnum, óháð reynslu eða styrkleika, og verður skipt í þrjár deildir eftir færnistigi. Verðlaunaféð nemur 800 bandaríkjadölum, sem samsvarar um 111 þúsund krónum miðað við núverandi gengi, auk medalía sem veittar verða sigurvegurum í hverri deild. Keppt verður samkvæmt double-elimination fyrirkomulagi þar sem liðin þurfa að tapa tvisvar til að detta úr leik. Flestar umferðir verða leiknar í best-of-3, en úrslitaleikurinn í best-of-5. Að auki er aðeins einum leikmanni í hverju…
Rafíþróttasamfélagið á Íslandi hittist á ný, eftir gott sumarfrí, til baráttu þegar PUBG scrim mót fór fram í gær sunnudaginn 17. ágúst. Þátttakan var ókeypis og skráðu sig alls 15 lið til leiks. Þar mátti sjá bæði þekkt nöfn úr íslensku PUBG-senunni og nýliða sem reyndu með sér í harðri samkeppni. Eftir sex leiki stóðu leikmenn OMNI uppi sem sigurvegarar með samtals 71 stig. Í öðru sæti endaði Agent000 með 65 stig, og í þriðja sæti lenti Fresh með 54 stig. NLG Red og Hraunbitar fylgdu fast á eftir í fjórða og fimmta sæti. Lið eins og Hlandblettur, Hot Drop…
Twisted Minds hrepptu heimsmeistaratitilinn í PUBG: BATTLEGROUNDS á Esports World Cup 2025: „Nú getum við kallað okkur heimsmeistara“
Lið Twisted Minds lyfti bikarnum í PUBG: BATTLEGROUNDS á Esports World Cup 2025 eftir dramatískt lokakvöld nú um helgina þar sem úrslitin réðust ekki fyrr en í síðasta leik. Þetta er annar sigur liðsins á heimsleikunum á aðeins tveimur vikum, en Twisted Minds höfðu áður tryggt sér titilinn í StarCraft II. Liðið átti jafna frammistöðu í riðlakeppninni og tryggði sér sæti í úrslitum með öruggum stigum. Þegar á lokasviðið var komið spilaði Twisted Minds stórvel, vann tvo „chicken dinners“ í sex leikjum og skapaði sér forskot sem reyndist gulls ígildi. https://www.youtube.com/watch?v=LBsaK9RuRag Í lokaumferðinni féllu tveir leikmenn þeirra snemma úr leik,…
Aðvörun vegna efnis: Í þessari grein er fjallað um málefni á borð við kynferðislega áreitni og kynferðisbrot. Alvarlegar ásakanir hafa komið fram á hendur kínverska rafíþrótta atvinnuspilaranum Sike „z4kr“ Zhang, AWPer hjá Lynn Vision. Um er að ræða ásakanir sem varða bæði sviksemi í samböndum, fjárkúgun og meðvitaða útbreiðslu kynsjúkdóma, sem gætu leitt til málsóknar og jafnvel fangelsisrefsingar. Málið komst í hámæli eftir að fyrrverandi kærasta z4kr birti efni á Douyin, kínversku TikTok útgáfunni, þar sem hún lagði fram skjáskot og samtöl sem áttu að sýna fram á grófa misnotkun. Þar kom meðal annars fram að hann hafi átt í…
Weibo Gaming stimplaði sig inn í sögubækurnar þegar liðið lagði Virtus.pro að velli í úrslitaleik Teamfight Tactics á Esports World Cup 2025. Sigurinn var öruggur, 3–1, og færði kínverska félaginu 150.000 Bandaríkjadali í verðlaunafé. Weibo hafði sýnt yfirburði alla leið í gegnum mótið. Þeir fóru ósigraðir í gegnum riðlakeppnina og töpuðu einungis einu einvígi í undanúrslitum gegn AEGIS. Virtus.pro átti þó ekki síður eftirtektarverða sigurgöngu, þar sem liðið lagði bæði Wolves Esports og T1 að velli með sannfærandi 2–0 úrslitum. Weibo hófu úrslitin með miklum krafti og enduðu allir fjórir leikmenn liðsins í efstu sætum fyrsta leiks. Virtus.pro svaraði fyrir…
Eitt stærsta viðburðaár tölvuleikjaiðnaðarins nálgast þegar Gamescom 2025 fer fram í Köln í Þýskalandi dagana 20. til 24. ágúst. Dagskráin hefst þó kvöldið 19. ágúst með Opening Night Live, þar sem fjölmargir stærstu framleiðendur heims kynna nýjustu afurðir sínar. Sýningin verður enn umfangsmeiri en áður, með um 11 prósenta fjölgun sýnenda sem koma nú frá alls 60 löndum. Hvar er hægt að horfa á í beinni? Þeir sem ekki geta verið á staðnum geta fylgst með beinni útsendingu á vefsíðu Gamescom, á Twitch eða YouTube. Microsoft hefur staðfest að Xbox verður stór á sýningunni. Þar verður hægt að sjá og…
Skráning er nú hafin í haustmót Apex Legends Íslands sem fer fram sunnudaginn 7. september klukkan 13:00. Að þessu sinni er mótið haldið eftir að fresta þurfti vormótinu vegna ónógrar þátttöku. Stjórnendur vonast nú til að áhuginn verði meiri og að keppnin fái þá spennu sem leikurinn á skilið. Mótið er haldið í samstarfi við GameTíví sem hefur um árabil stutt við íslenskt rafíþróttalíf með útsendingum og viðburðum. Pláss er fyrir 20 lið í mótinu og munu þau lið sem skrá sig umfram þann fjölda færast á biðlista. Þeir sem skrá sig sem einstaklingar hafa einnig möguleika á að mynda…
Esports World Cup 2025 er komin á fullt skrið og 6. vika lofar spennandi viðureignum í Teamfight Tactics, TEKKEN 8, Street Fighter 6, Rocket League og PUBG. Fleiri EWC fréttir hér. Nú er mótið hálfnað og á þessu stigi er keppnin gríðarlega hörð, en nokkrir leikmenn vekja sérstaka athygli. Hér eru sex sem líklegt er að muni setja svip sinn á mótið. Michael “k3soju” Zhang – Team Vitality, Teamfight Tactics Stærsti TFT-streymir heims snýr aftur á svið EWC eftir að hafa dottið út í undanúrslitum 2024 gegn Wolves Esports, sem síðar unnu titilinn. Hann tryggði sér sæti í ár með…
