
Jólamót Apex Íslands fór fram á Arena Gaming og var haldið í samstarfi Apex Íslands og GameTíví, stærsta styrktaraðila mótaraðarinnar. Útsending mótsins fór fram úr Meta stúdíóinu þar sem áhersla var lögð á faglega framsetningu og lifandi lýsingu á spennandi keppni.
Keppt var eftir svokölluðu match point kerfi upp í 50 stig. Það þýðir að lið þurfa fyrst að safna 50 stigum og síðan vinna einn leik, lenda í fyrsta sæti, til að tryggja sér sigur í mótinu. Stig fást bæði fyrir lokasæti í hverjum leik, frá fyrsta til tólfta sætis, auk þess sem hvert kill gefur eitt stig. Þetta kerfi getur lengt mót töluvert ef mörg lið ná 50 stigum án þess að vinna leik, en getur einnig stytt það verulega þegar eitt lið nær fullkomnu flæði.
Það var einmitt það sem gerðist á þessu móti. Liðið No Flight Zone tryggði sér sigur með sannfærandi hætti, náði 50 stigum eftir aðeins tvo leiki og vann svo strax næsta leik. Þar með lauk mótinu eftir einungis þrjá leiki, sem telst algjör mettími í þessu keppnisformi. Sjaldan hefur sigur verið jafn snöggur og afgerandi.
Alls tóku 13 lið þátt í mótinu, eða 39 keppendur. No Flight Zone skipað Binniyaga, MR_JON96 og Aron endaði tæknilega séð með 74 stig þegar mótið var stöðvað. Í öðru sæti endaði liðið Litlir Menn skipað Novak, Skorsteini og Finnboganum með 35 stig. Þriðja sætið hlaut liðið QDS skipað B1GMAYNE, YEEMAYNE og 9INCHMAYNE með 27 stig.

Liðið QDS, sem áður gekk undir nafninu B2B eða Boys2Back, eru Skjálftameistarar 2025 og mættu í viðtal að móti loknu. Þeir voru jafnframt eina liðið sem mætti á Arena Gaming til að keppa á staðnum, á meðan öll önnur lið kepptu heiman frá sér. Þegar þeir voru spurðir hvað hefði farið úrskeiðis að þessu sinni var svarið gefið með glotti á vör og kátínan lét ekki á sér standa meðal viðstaddra.
„Mr. Jón. Þið sáuð hvað gerðist þegar hann var út á Spáni.“
Þar var vísað til Skjálftamótsins 2025 þar sem QDS stóð uppi sem sigurvegari á meðan MR_JON96 og liðsfélagar hans í No Flight Zone gátu ekki tekið þátt, þar sem Jón var þá staddur á Spáni.
Lýsing mótsins var í höndum Daniels Lunkevich, betur þekktur sem Dannisosa, og Kristofer McCollough, Krio, sem leiddu áhorfendur í gegnum mótið af fagmennsku og héldu uppi góðri stemningu frá upphafi til enda.
Vod upptakan frá Jólamóti Apex Íslands
Myndir: skjáskot úr streyminu / Melína Kolka




