Í gærkvöldi fór fram æsispennt mót í PlayerUnknown’s Battlegrounds hjá íslenska PUBG-samfélaginu, þar sem lið komu saman í upphitunarscrimmi fyrir komandi GameTíví-deildin. Mótið gaf sterka vísbendingu um það sem fram undan er í íslenskri PUBG-keppni, bæði hvað varðar spilamennsku, taktík og stemningu.
Alls tóku 14 lið þátt í mótinu í Tier 2 flokki, en liðin sem enduðu í fimm efstu sætunum á Íslandsmeistaramótinu 2025 höfðu ekki þátttökurétt. Það voru Omni, Pngr, Hlandblettur, Fresh og Cage Fan Club.
Spilaðir voru sex leikir í gærkvöldi á kortunum Erangel, Taego, Rondo og Miramar. Keppnin var jöfn og spennan mikil allt fram á síðustu leiki kvöldsins, þar sem hvert stig skipti sköpum í lokaniðurstöðunni.
Sigurinn í mótinu féll í skaut 354 esports, sem sýndi stöðugleika og yfirvegaðan leik allt kvöldið. Fyrir liðið spiluðu IcevikingOlaf, Haukur, Gooey-99 og Noraldinho
Í öðru sæti hafnaði liðið Oldies, skipað Biker4Life, Control_Shift, Audio___ og Donakarli. Oldies hélt lengi vel efsta sætinu, en á lokasprettinum tókst 354 esports að snúa taflinu við og tryggja sér sigurinn í mótinu.
Þriðja sætið tryggðu sér Hraunbitar, með Lummehh, DummDumm, OlDirtyHoe og FenrisVoffa innan sinna raða, eftir sterka frammistöðu og nokkra eftirminnilega bardaga á lokasprettinum.
Til gamans má geta að Brjanzi var með flest „kills“ í mótinu, alls 16 talsins, en hann spilaði með liðinu 24 Hours Drama Club.
Upphitunarscrimmið var hluti af undirbúningi fyrir GameTíví-deildina sem fer fram á fimm keppnisdögum, 18. janúar, 8. febrúar, 1. mars, 22. mars og 12. apríl. Þar munu bestu PUBG-lið landsins etja kappi reglulega yfir tímabilið.
Í framhaldi af deildarkeppninni mun Íslandsmeistaramótið í PUBG 2026 fara fram í tveimur hlutum, þann 3. og 10. maí. Miðað við spilamennskuna sem sást í gærkvöldi er ljóst að keppnin um Íslandsmeistaratitilinn stefnir í að verða hörð, skemmtileg og full af ófyrirsjáanlegum augnablikum.




