Heimasíða eSports.is hefur verið endurhönnuð frá grunni og býður nú upp á nútímalegt viðmót, betra aðgengi að efni og fjölbreyttari miðlun. eSports.is opnaði formlega 1. febrúar 2008.
Nýja útlitið og skipulagið endurspeglar þá stefnu að gera síðuna að miðpunkti íslensks rafíþróttasamfélags – bæði fyrir leikmenn, áhugafólk og atvinnugreinina sjálfa.
Markvissari umfjöllun og leikjarýni í brennidepli
Í þessari nýju útgáfu fær leikjarýni aukið vægi, þar sem farið er ítarlega yfir nýjustu og áhugaverðustu leikjatitla. Á síðunni má nú sjá hvaða rýni eru í vinnslu – og fyrstu tveir titlarnir sem unnið er að eru The Book of Aaru og Run Pizza Run:
- The Book of Aaru er myrk og sögudrifin ævintýraferð þar sem leikmenn kafa inn í yfirnáttúrulegan heim.
- Run Pizza Run er hraðskreiður og skemmtilegur leikur þar sem leikmaðurinn gegnir hlutverki pizzusendil í kapphlaupi við tímann.

Safnið nær allt að 15 ár aftur í tímann og veitir aðgang að eldri fréttum með einu smelli.
Fréttasafn sem spannar 15 ár
Nýja heimasíðan opnar einnig aðgang að umfangsmiklu fréttasafni sem nær allt að 15 ár aftur í tímann. Þar má finna fjölda greina, viðtala og umfjöllunar um þróun rafíþrótta á Íslandi – dýrmæt heimild fyrir áhugasama um sögu og vöxt greinarinnar.
Auglýsingar, fréttabréf og sýnileiki samfélagsmiðla
Auglýsingar fá aukna áherslu, með stærri vefborðum og auknum möguleikum í hverjum samningi. Innifalið geta verið birtingar í fréttum, sérmerktum efnisflokkum og í tengslum við viðburði.
Samhliða því hefur verið tekið í notkun nýtt póstlistakerfi þar sem lesendur geta fengið reglulegan tölvupóst með nýjustu fréttum, leikjatilboðum, spennandi viðburðum og keppnum.
Samfélagsmiðlar eSports.is eru nú áberandi víða á síðunni – bæði efst og neðst á forsíðu og undirsíðum – og nær það til X, Facebook, YouTube, BlueSky, Discord og Steam. Vert er að nefna Facebook-hópinn Tölvuleikir, mót & fréttir, þar sem rætt er um nýjustu fréttir og viðburði tengda tölvuleikjum.
Dökkur bakgrunnur og aðgengi að samfélagi
Í takt við þróun í leikjasamfélaginu hefur heimasíðan nú fengið dökkan bakgrunn (Dark Mode), sem lengi hefur staðið til. Dökkt viðmót er ekki aðeins vinsælt meðal leikjaspilara, heldur bætir það einnig upplifun við lestur í dimmu umhverfi.
Þá hefur verið bætt við yfirliti yfir íslenskar Facebook-grúppur tengdar tölvuleikjum, þar sem gestir síðunnar eru hvattir til að senda inn sínar uppáhalds grúppur á netfangið [email protected].
Nýir leikjatitlar og skýrari flokkaskipting
Í valmyndinni má nú finna sérstakan flokk undir heitinu „Incoming„, þar sem haldið er utan um væntanlega leikjatitla. Þar má sjá útgáfudaga, forsmekk í myndbandi og væntingar úr leikjasamfélaginu.
Að lokum hafa fréttir verið skýrt flokkaðar eftir leikjavettvangi:
- Nintendo
- PC-leikir
- PlayStation
- Rafíþróttir
- Xbox
eSports.is býður nú upp á nútímalega, hagnýta og fjölbreytta umgjörð fyrir allt efni tengt tölvuleikjum og rafíþróttum. Með endurhönnun síðunnar stígur vefurinn stórt skref í að efla íslenskt leikjaumhverfi – og bjóða bæði notendum og samstarfsaðilum öflugan vettvang til framtíðar.
Það er wplausnir.is sem á heiðurinn af hönnun og tæknilegri uppsetningu nýju síðunnar, sem keyrð er á WordPress – með leikjamenningu, notendavæni og framtíðarsýn í fyrirrúmi.