Endurgerð hins myrka og ofbeldisfulla skotleiks Painkiller er væntanleg síðar á þessu ári, samkvæmt upplýsingum sem birtust nýverið á PSFrettir.com – fyrstur íslenskra fjölmiðla til að fjalla um endurkomu leiksins..
Þar kemur fram að endurgerðin sé í höndum pólska leikjafyrirtækisins Anshar Studios og verður gefin út af Saber Interactive.
Upphaflegi Painkiller kom út árið 2004 og hlaut strax mikla athygli fyrir harkalega spilun, drungalega gotneska stemningu og hráa hasarinn sem minnti á klassíska skotleiki eins og Doom og Quake. Leikurinn vakti sérstaka lukku meðal aðdáenda gamaldags skotleikja þar sem hraði og djörf hönnun skiptu öllu máli – og var jafnframt notaður í keppnisleikjaumhverfi á sínum tíma, m.a. í CPL deildinni.
Endurgerðin, sem Anshar Studios hefur unnið að í samstarfi við móðurfélagið Embracer Group, hefur verið í þróun um árabil en lítið hefur verið opinberað til þessa. Í nýjustu tilkynningu kemur þó fram að leikurinn verði sýndur opinberlega á Gamescom-sýningunni í ágúst, og að útgáfa sé áformuð haustið 2025.
Upprunalegi Painkiller (2004)
Painkiller var valinn sem opinber keppnisleikur í Cyberathlete Professional League árið 2005
Fyrirtækið Anshar Studios hefur reynslu af metnaðarfullum endurgerðum, þar á meðal Halo: Combat Evolved Anniversary og World War Z, og því er ljóst að margir binda vonir við að Painkiller endurvakni með reisn og virðingu fyrir uppruna sínum.
Nánari upplýsingar verða væntanlega opinberaðar í aðdraganda Gamescom, en á meðan geta aðdáendur gömlu góðu tímanna farið að stilla sig inn á endurkomu leiks sem margir telja vera vanmetið meistaraverk í sögu skotleikja.
Endurgerð Painkiller verður gefin út 9. október og kemur þá út á PlayStation 5, Xbox Series X|S og PC.
Beint í djöfulinn sjálfan – Haust 2025
Endurgerð klassíska skotleiksins Painkiller:
Mynd: saber.games