Close Menu
    Nýjar fréttir

    Sterkasti maður heims ræðst inn í stafræna bardaga – Fylgstu með Fjallinu í beinni á Twitch

    25.06.2025

    Dune: Awakening slær í gegn á heimsvísu – milljón spilara á viku og tekjur upp á nærri 7 milljarða króna

    25.06.2025

    Painkiller frá 2004 fær blóðheita endurgerð – Hvernig lítur Painkiller út árið 2025? Sjáðu muninn!

    25.06.2025

    „PlayStation-skattur“ undir smásjá – Neytendur í Hollandi krefjast milljarða í skaðabætur

    24.06.2025
    1 2 3 … 252 Next
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    esports.is
    • Forsíða
    • Tölvur og leikir
      • Incoming
      • Nintendo
      • PC leikir
      • Playstation
      • Xbox
      • Rafíþróttir
    • Leikjarýni
      1. Leikjarýni
      Featured
      60

      Leikjarýni: Kláruðust skotin? Þá byrjar alvöruspennan í Make It Count

      Chef-Jack13.05.2025
      Recent
      6.0

      Leikjarýni: Kláruðust skotin? Þá byrjar alvöruspennan í Make It Count

      13.05.2025

      Leikjarýni: Bullet Yeeters – Jetpack, byssur og sprengingar í stofunni – Nýr fjölspilunarleikur breytir heimilinu í vígvöll – og það með stæl – VARÚÐ

      09.05.2025

      Leikjarýni: Þú færð kannski ekki vinning – Ekki örvænta – Taylor Swift er samt með þér

      04.05.2025
    • Auglýsa?
    • Um okkur
      • Hafðu samband
      • Auglýsa?
      • Fréttabréf
      • Um vefinn
      • Íslenskar Fb grúppur
    esports.is
    Forsíða»Tölvuleikir»Sterkasti maður heims ræðst inn í stafræna bardaga – Fylgstu með Fjallinu í beinni á Twitch
    Hafþór Júlíus Björnsson - The Mountain - The World's Strongest Man
    Tölvuleikir

    Sterkasti maður heims ræðst inn í stafræna bardaga – Fylgstu með Fjallinu í beinni á Twitch

    Chef-Jack25.06.20253 mín lestur
    Deila
    Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    Hafþór Júlíus Björnsson - The Mountain - The World's Strongest Man
    Hér má sjá Hafþór Júlíus spila sem Namor í leiknum Marvel Rivals.

    Hafþór Júlíus Björnsson, kraftlyftingamaður og leikari, hefur undanfarin ár vakið mikla athygli fyrir frammistöðu sína í allt öðrum vettvangi en áður – tölvuleikjaspilun. Með yfir 250 þúsund fylgjendur á streymisveitunni Twitch hefur Hafþór byggt upp öflugt samfélag áhugasamra áhorfenda og leikjaspilara sem fylgjast með honum streyma vinsæla tölvuleiki á borð við Marvel Rivals, Overwatch 2 og Valhalla.

    Frægt er orðið hlutverk Hafþórs sem fjallið Gregor Clegane í þáttunum Game of Thrones, auk þess sem hann hlaut nafnbótina World’s Strongest Man árið 2018 og hefur fimm sinnum unnið til titilinn Europe’s Strongest Man.

    Hafþór Júlíus Björnsson - The Mountain - The World's Strongest Man
    Einbeittur og rólegur – Hafþór Júlíus stillir sig inn fyrir næsta bardaga í streymi dagsins.

    Einbeitt frammistaða í Marvel Rivals vekur athygli

    Fréttamaður Esports.is fylgdist nýverið með beinni útsendingu frá Hafþóri þar sem hann spilaði vinsæla leik Marvel-vörumerkisins, Marvel Rivals. Þar sýndi hann bæði leikni og ákafa, og var ljóst að hann hafði lagt metnað í leikstíl sinn og samvinnu með liðsfélögum. Útsendingin vakti athygli fyrir fagmennsku, skýra leikstjórn og ákveðinn takt sem minnti á þann aga sem Hafþór er þekktur fyrir úr íþróttum sínum.

    The World’s Strongest Gamer – ný útgáfa af fyrirmynd

    Á YouTube-rás sinni, sem ber nafnið The World’s Strongest Gamer, birtir Hafþór reglulega samansafn áhugaverðra augnablika úr útsendingum sínum. Þar gefst aðdáendum tækifæri til að skyggnast betur inn í líf þessa fjölhæfa Íslendings og sjá hann í allt öðru ljósi – afslappaðan, einbeittan og fullan leikgleði.

    Tölvuleikjaáhuginn hefur fylgt Hafþóri frá unglingsárum, og í viðtölum hefur hann nefnt Counter-Strike sem einn af sínum uppáhaldsleikjum. Þrátt fyrir að hafa notið alþjóðlegrar frægðar fyrir líkamsstyrk sinn og leiklistarhæfileika, hefur hann nú á síðustu misserum opnað glugga inn í persónulegri og daglegri hlið á sjálfum sér – þar sem ástríða fyrir leikjum fær að njóta sín.

    Hafþór Júlíus Björnsson - The Mountain - The World's Strongest Man
    Frammistaða Hafþórs í Marvel Rivals staðfestir að hann er ekki aðeins sterkur á líkama – heldur líka á lyklaborðinu

    Hafþór streymir reglulega undir yfirskriftinni „Games and Chill“, þar sem hann spilar leikina í afslöppuðu andrúmslofti með áhorfendum sínum. Streymissíður á borð við TwitchTracker og StreamCharts sýna að hann hefur byggt upp traustan hóp fylgjenda og nýtur þar mikillar virðingar sem áreiðanlegur og skemmtilegur streymari.

    Í streymum sínum leggur hann áherslu á virka þátttöku áhorfenda, spjallar við fylgjendur í rauntíma og hvetur til opinnar umræðu – ekki ósvipað og hann gerði á keppnisvellinum, þar sem hann var alltaf meðvitaður um áhrif sín og nærveru.

    Hafþór Júlíus Björnsson - The Mountain - The World's Strongest Man
    Áhorfendur víða að úr heiminum fylgjast með Hafþóri í beinni útsendingu.
    Bandaríkin leiða hópinn með 13 áhorfendur, en einnig má sjá virka fylgjendur í löndum á borð við Þýskaland, Kanada, Ísland, Ástralíu, Bretland, Svíþjóð, Rúmeníu og Malasíu. Dreifing áhorfenda undirstrikar alþjóðlega nánd og áhrif Hafþórs Júlíusar Björnssonar í streymis- og leikjamenningu.

    Hvort sem hann er að stjórna ofurhetju í Marvel-leik eða skjóta sig í gegnum borð í Overwatch, þá skín sami drifkrafturinn í gegn og einkenndi feril hans sem sterkasti maður heims.

    Myndir: skjáskot úr beinni útsendingu á Twitch

    Hafþór Júlíus Björnsson - The Mountain Marvel Rivals Overwatch PC leikur Twitch Valhalla
    Deila Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    Chef-Jack

    Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

    Tengdar færslur

    Dune: Awakening slær í gegn á heimsvísu – milljón spilara á viku og tekjur upp á nærri 7 milljarða króna

    25.06.2025

    Painkiller frá 2004 fær blóðheita endurgerð – Hvernig lítur Painkiller út árið 2025? Sjáðu muninn!

    25.06.2025

    „PlayStation-skattur“ undir smásjá – Neytendur í Hollandi krefjast milljarða í skaðabætur

    24.06.2025

    Er tölvuleikurinn orðin nýr vettvangur leyndarmálanna? Viðkvæmar trúnaðarupplýsingar leka út

    24.06.2025
    Við mælum með

    eSports.is með glænýja heimasíðu: Áherslan á rafíþróttir og leikjamenningu aukin til muna

    19.06.2025

    Nýtt ævintýri frá CCP: EVE Frontier er mættur

    11.06.2025

    Myrkur Games sameinar íslenskt hugvit og hágæða tækni í stórleiknum Echoes of the End – kemur út í sumar

    08.06.2025

    Hver er TGLTN – óstöðvandi PUBG-snillingur frá Ástralíu? – þetta myndband segir meira en þúsund orð

    07.06.2025
    1 2 Next
    Mest lesið
    • Cloud9 segir skilið við Mang0 eftir óviðeigandi framkomu - Hvaða ábyrgð bera stjörnur rafíþrótta?
      Cloud9 segir skilið við Mang0 eftir óviðeigandi framkomu – Hvaða ábyrgð bera stjörnur rafíþrótta?
      24.06.2025
    • SEGA - Logo
      Reddit notandi afhjúpar sölutölur SEGA
      22.06.2025
    • Gears 5
      Gears 5 er varla spilanlegt á PC
      21.06.2025
    • Vitality fagna öðrum Major-titli – sigruðu The MongolZ í úrslitum Austin Major
      Vitality fagna öðrum Major-titli – sigruðu The MongolZ í úrslitum Austin Major
      23.06.2025
    • Steam Next Fest
      50 mest spiluðu demóin á Steam – Þetta eru leikirnir sem allir prófuðu
      20.06.2025
    Leikjarýni í vinnslu

    19. júní 2025 – The Book of Aaru
    (Leikjarýnin lítur dagsins ljós á næstu dögum.)

    17. júní 2025 – Run Pizza Run
    (Leikjarýnin lítur dagsins ljós á næstu dögum.)

    esports.is
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    • Forsíða
    • Auglýsa
    • Tölvuleikir
    • Um vefinn

    Sláðu inn leitarorð hér að ofan og smelltu á Enter til að leita. Smelltu á Esc til að hætta við.