Author: Chef-Jack
Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]
Marc “Caedrel” Lamont, þjálfari Los Ratones, stóð við orð sín þegar hann lét raka af sér allt hárið opinberlega á sviði á League Awards 2025 eftir að hafa tapað veðmáli um sigur T1 á League of Legends World Championship 2025 með nýja toppmanni liðsins, Choi ‘Doran’ Hyeon-joon. Árinu áður hafði Caedrel lýst því yfir að ef T1 næði heimsmeistaratitli með Doran í toplane myndi hann láta raka sig sköllóttan. Sú staða kom upp þegar T1 tryggði sér sinn þriðja heimsmeistaratitil í röð og ljóst var að Caedrel þyrfti að efna loforðið. Við verðlaunaathöfnina á League Awards, þar sem Caedrel var…
Nýr tölvuleikur frá þróunarteyminu Triple Espresso, Copa City, kemur út 26. mars 2026 og býður leikmönnum að stíga inn í þá flóknu og oft ósýnilegu vinnu sem liggur að baki stórum knattspyrnuviðburðum. Leikurinn sameinar stjórnun á borg og viðburðastjórnun á lifandi og nútímalegan hátt, þar sem markmiðið er að tryggja að leikdagurinn verði bæði öruggur og ánægjulegur fyrir alla sem að honum koma. Í Copa City fær leikmaðurinn fullt ákvörðunarvald yfir allri skipulagningu. Þar tekur hann við stjórn á leikvangi og innviðum borgarinnar, skipuleggur flæði fólks, velur leiðir fyrir stuðningsmenn og lið, sér um öryggismál og tryggir að allt sé…
Lið sem fyrir tveimur árum átti sínar bestu stundir á sviði Counter-Strike virðist nú komið í bullandi tilvistarkreppu. GamerLegion, sem náði ævintýralegum árangri á BLAST.tv Paris Major 2023 og skapaði sér orðspor sem snjallt og yfirvegað evrópskt lið, hefur síðustu misseri siglt í sífellt ólgumeiri sjó. Grein Esports News fer ítarlega yfir stöðuna og hér höfum við endurskapað þá umfjöllun á íslensku. This is it, our last game of 2025. It was a crazy year, with more Playoffs appearances since we started, new highs, but sadly, new lows too. See you in 2026. pic.twitter.com/eUVe7zuLzz — GamerLegion (@GamerLegion) November 26, 2025…
Eagle Dynamics og Airplane Simulation Company hafa í dag opnað fyrir Early Access-útgáfu af C-130J-Hercules fyrir DCS World. Þeir sem vilja geta keypt viðbótina annað hvort í gegnum eigin vefverslun Eagle Dynamics eða í gegnum Steam. Verðið er 63,99 bandarískir dollarar meðan hún er í Early Access. Þegar full útgáfa kemur verður verð hækkað í 79,99 dollarar, að því er fram kemur í tilkynningu frá Eagle Dynamics. Flutningsflugvélin opnar nýja vídd innan DCS: að þessu sinni snýr ekkert að loftbardaga heldur flutningum, birgðaflutningum og skipulögðum sendingum, hið klassíska hlutverk „Herc-flutningsvélar“. C-130J-viðbótin kemur með nánast fullri hermun á flugvélinni. Spilari fær…
Ný rannsókn frá People Make Games (PMG) hefur varpað ljósi á umdeilda uppsögn 34 starfsmanna hjá Rockstar Games. Stjórnendur fyrirtækisins fullyrtu að um „alvarlegt ámælisvert athæfi“ hefði verið að ræða, á meðan Independent Workers Union of Great Britain sagðist horfa upp á skýrt dæmi um skipulagt brot gegn stéttarfélagi. Sjá einnig: Rockstar heldur því fram að uppsagnirnar séu afleiðing leka trúnaðarupplýsinga Nú virðast skjáskot úr Discord-grúppu starfsmanna sýna hvaða skilaboð stjórnendur töldu lykilgögn í málinu. Umræddur Discord-þjónn var stofnaður árið 2022 og þar voru yfir 300 staðfestir starfsmenn Rockstar Games ásamt skipuleggjendum IWGB. Nýir félagar sem sýndu áhuga á stéttarfélagsstarfi…
Undanúrslit Íslandsmóts Símans, sem er skipulagt af Rafíþróttasambandi Íslands í samstarfi við Skáksamband Íslands og Sjónvarp Símans lauk sunnudaginn 23. nóvember þegar þeir Símon Þórhallsson og Vignir Vatnar Stefánsson lögðu andstæðinga sína að velli. Það var stórmeistarinn Bragi Þorfinnsson sem lá nokkuð óvænt í valnum gegn FIDE-meistaranum Símoni Þórhallssyni sem þó hefur heldur betur komið á óvart í keppninni og lagði Jóhann Hjartarson að velli í 8-manna úrslitum. Einvígið fór af stað með skrautlegri fyrstu skák. Símon tefldi eins og herforingi með svörtu mönnunum, losnaði við stakt peð og hafði biskupaparið og vann svo peð. Símon virtist eiga sigurinn vísann…
Litla Kraftvéladeildin er orðinn fastur liður í íslenska Dota 2 samfélaginu. Mótið hefur fengið viðurnefnið „pabba-deildin“ þar sem það er sérstaklega hannað fyrir áhugamenn með svokölluðu mmr-cappi sem tryggir að of hátt rankaðir leikmenn geta ekki skráð sig í mótið og raskað jafnvæginu. Mótið hófst 22. september, lauk 21. nóvember og tók á móti 11 liðum eða 55 leikmönnum auk varamanna. „Við leggjum upp með að hafa þetta eins þægilegt og sveigjanlegt og hægt er svo fólk geti spilað í ró og næði,“ segir Bergur Árnason úr mótastjórn í samtali við esports.is. Alltaf var spiluð ein best of 3 umferð…
UN Women á Íslandi og ÖBÍ réttindasamtökin standa fyrir öflugri málstofu um stafrænt ofbeldi og áreitni á morgun þriðjudag, 25. nóvember, í Mannréttindahúsinu við Sigtún. Viðburðurinn ber yfirskriftina „Dreptu þig bara“ og fjallar af skýrum hætti um það hvernig orðræða og áreitni á stafrænum vettvangi geta haft alvarlegar og langvarandi afleiðingar í raunheimum. Þrátt fyrir áratugalangar framfarir í jafnréttismálum er kynbundið ofbeldi enn eitt útbreiddasta mannréttindabrot heims. Tölur sýna að ein af hverjum þremur konum hefur á lífsleiðinni orðið fyrir kynbundnu ofbeldi. Viðvarandi staðalímyndir um kynhlutverk, skaðleg viðhorf, veik lagaumgjörð og skortur á úrræðum eru meðal þátta sem hamla framgangi…
Rafíþróttasamband Íslands hafa opnað fyrir skráningu á næsta grunnnámskeiði í rafíþróttaþjálfun sem fer fram í Stórhöfða 31 í Reykjavík. Námskeiðið er haldið laugardaginn 30. nóvember og stendur frá klukkan 13 til 17 þar sem þátttakendur fá yfirgripsmikla innsýn í fagleg vinnubrögð, undirbúning og hlutverk þjálfara í nútímalegu rafíþróttaumhverfi. Á námskeiðinu er farið yfir lykilhugtök í þjálfun, líkamlega hreyfingu og mikilvægi heildræns stuðnings við iðkendur. Einnig verður fjallað um eðli rafíþrótta, hlutverk og ábyrgð þjálfara og hvernig best er að vinna með foreldrum og leikmönnum. Lögð er áhersla á að byggja upp góðar æfingar, skapa jákvætt umhverfi og móta sterka félagslega…
PUBG Corporation og KRAFTON kynna nýjan taktískan extraction-skotleik sem ber nafnið PUBG: Black Budget. Leikurinn er FPP þar sem spennan, óvissan og taktíkin móta alla upplifun. Leikmenn stíga inn í hlutverk sérsveitarmanns sem er kallaður til í classified mission á afskekktri eyju. Þar þarf að endurheimta háleynilegar rannsóknir úr yfirgefnu rannsóknarmiðstöð. Eyjan er föst í tímalykkju sem stafar af yfirnáttúrulegu fyrirbæri, Anomaly, og heldur öllu umhverfinu í stöðugum óstöðugleika. Markmiðið er að safna gögnum, rannsaka þau og afhjúpa sannleikann um leyniverkefnið SAPIENS og hina dularfullu starfsemi þess. Á milli verkefna geta leikmenn byggt upp eigin bækistöð, smíðað nýjan búnað og…
