Íslenski leikurinn Echoes of the End, frá Myrkur Games, kom út í dag og hefur þegar vakið mikla athygli bæði hér heima og erlendis. Leikurinn hefur verið í þróun um árabil og margir spilarar beðið spenntir eftir útgáfunni.

Þegar ég opnaði leikinn í fyrsta sinn fann ég strax fyrir þeirri tilhlökkun sem fylgir vel unnu verki, hann greip mig við fyrstu mínúturnar og leikurinn kom sér fljótt í gang án óþarfa biðtíma.
Sagan er kynnt af mikilli natni í byrjun og stemningin er magnþrungin. Það sést að hugað hefur verið að því að byggja upp sterkan söguheim, og hún heldur dampi frá upphafi til enda. Enginn kafli fannst mér dragast á langinn, sem er óvenjulegt í svona umfangsmiklu verki.
Bardagarnir við hinar og þessar skepnur eru sérstaklega eftirminnilegir. Þeir reyndu á mig á köflum, en voru alltaf jafnt spennandi og skemmtilegir. Þrautirnar í leiknum eru vel hannaðar og kröfðust oft töluverðrar þolinmæði og útsjónarsemi, en ávallt var ánægjulegt að leysa þær.
Það var sérstök upplifun að heyra íslenskt mál hljóma víða í leiknum, inn á milli. Þessi smáatriði gefa leiknum ákveðinn heimilislegan og menningarlegan blæ sem sjaldan sést í alþjóðlegum tölvuleikjum.
Ég tók þó eftir því að leikurinn hökti lítillega þegar hann var að vista, þrátt fyrir að ég spili á öflugri tölvu. Í einum kafla festist leikurinn, en að endurræsa hann leysti vandann. Þessi atriði verða vonandi lagfærð í komandi uppfærslum.
Myrkur Games hefur þegar birt „Patch Notes„, sem sýnir að þeir ætla sér að fylgja leiknum vel eftir og laga það sem þarf.
Útlit leiksins er hreint út sagt glæsilegt. Grafíkin, hljóð og andrúmsloftið standa fullkomlega undir væntingum, sérstaklega miðað við þau kynningarmyndbönd sem ég hef fylgst með fram að útgáfu. Ég fann ekki fyrir neinum augljósum veikleikum í hönnun eða frásögn sem myndu draga úr upplifuninni.
Echoes of the End kemur út á PC, PlayStation 5 og Xbox og er nú til að mynda fáanlegur á Steam með sérstökum kynningarafslætti fram til 19. ágúst. Að mínu mati er þetta leikur sem ég get heilshugar mælt með, ekki aðeins fyrir aðdáendur ævintýra- og hasarleikja, heldur einnig fyrir þá sem kunna að meta vandaða sögu, sjónrænan stórfengleika og íslenskan brag.
Fleiri fréttir af leiknum hér.
Samantekt
Echoes of the End er metnaðarfullt og vandað verk sem sameinar stórkostlega frásögn og áhrifamikið útlit. Þetta er leikur sem ég mæli heilshugar með fyrir alla sem kunna að meta ævintýra- og hasarleiki.
Kostir
- Magnþrungin stemning og sterkur söguheimur sem heldur dampi frá upphafi til enda
- Glæsileg grafík, hljóð og andrúmsloft sem standa undir væntingum
- Bardagar og þrautir bæði krefjandi og ánægjulegar
- Íslenskan bætir leiknum menningarlegum og heimilislegum blæ
- Myrkur Games sýnir metnað með því að fylgja leiknum strax eftir með „Patch Notes“
Gallar
- Smávægilegt hik þegar vistað er, jafnvel á öflugri vél
- Bardagar við suma óvini geta endurtekið sig og orðið fyrirsjáanlegir á löngum spilunartíma
-
Einkunn9












