Recharge teygir sig inn í raunveruleikann með nákvæmni! Það hljómar eins og barnaleikur, en Recharge er ekkert grín. Þessi nýjasti leikur frá Room Games flaug inn á PC, Xbox og PlayStation þann 28. júlí og lofar miklu fyrir þá sem elska bæði hraða og nördalega fíneríið sem fylgir smíð og stillingum á fjarstýrðum kappakstursbílum.
Í grunninn er Recharge SimCade leikur, sem blandar saman góðu flæði og grafískum glæsibrag við raunveruleika. Leikurinn lætur sig lítið varða flókin öpp eða djúpstæðan söguþráð, heldur snýst þetta fyrst og fremst um að koma sér í gang og njóta akstursins.
Með ýmsum keppnisstillingum eins og Drift Mode, Combat Racing og Open World Mode fær maður að upplifa mismunandi áskoranir á brautum sem minna bæði á mótorklúbba og brautir sem líta út fyrir að hafa verið hannaðar af smið í verkfalli.
Það sem heillar strax er útlitið. Grafíkin er óvenju góð fyrir leik í þessum flokki, með smáatriðum eins og ryki sem lyftist upp, rykskýjum sem vefja sig utan um bílinn eins og reykur úr þreyttum hraðsuðukatli og ljósum sem speglast á blautum brautum.
En hvað vantar?
Ég verð að játa að það var ákveðin vonbrigði að fá ekki að prófa að sérsníða bílana. Það virðist vera ein af burðarstoðum leiksins, möguleikinn á að hanna bæði útlit og vélræna hegðun RC-bílanna, en þessi virkni var ekki aðgengileg í þeirri útgáfu sem ég fékk í hendurnar. Það er skrýtið, sérstaklega þar sem leikurinn ýtir mjög undir þá ímynd að þú getir búið til þinn draumabíl frá grunni.
Þrátt fyrir þetta er nóg um að vera. Upp að 12 spilarar geta mætt í keppni samtímis, og þökk sé cross-platform stuðningi er auðvelt að hitta á aðra spilara.
Niðurstaða
Recharge er leikur með mikla sál. Hann er augljóslega unninn af fólki sem hefur brennandi áhuga á RC-heiminum og kappakstri almennt. Recharge er fyrir þá sem telja sekúndur, ekki mínútur og án þess að sitja í bíl með stressaðum ökukennara sem andar í gegnum nefið.
Leikurinn kom út 28. júlí síðastliðinn og er nú fáanlegur á Steam.
Ég fékk leikinn án endurgjalds. Rýnin er byggð á minni eigin reynslu og birting hennar er án utanaðkomandi áhrifa. Myndir og vídeó eru frá leikjahönnuði.
Samantekt
Recharge er leikur með mikla sál. Hann er augljóslega unninn af fólki sem hefur brennandi áhuga á RC-heiminum og kappakstri almennt. Þó leikurinn sé enn með nokkra fleti sem má slípa, eins og aðgengi að customization, þá lofar hann góðu. Recharge er fyrir þá sem telja sekúndur, ekki mínútur og án þess að sitja í bíl með stressaðum ökukennara sem andar í gegnum nefið.
Kostir
- Fullkominn skammtur fyrir þá sem þola ekki hægan akstur né hæga leiki
Gallar
- Það er ákveðin mótsögn sem vaknar þegar leikjaframleiðendur veita fjölmiðlum eða rýnendum aðgang að leik fyrir útgáfu, en ákveða svo að takmarka lykilþætti leiksins í þeirri útgáfu sem þeir afhenda.
-
Einkunn7










