Rafíþróttasamband Íslands (RÍSÍ) stendur fyrir nýju Rocket League móti sem hefst í dag, 7. september, og mun standa yfir næstu mánuði.
Keppt verður í Round Robin deild þar sem öll lið mætast áður en best settu liðin tryggja sér sæti í úrslitakeppni. Mótinu lýkur 29. nóvember þegar úrslitaleikur fer fram og krýnt verður sigurlið.
Þátttakendur geta því átt von á löngu og krefjandi móti þar sem hvert stig getur skipt sköpum í leiðinni að úrslitum.
Mynd: rocketleague.com




