[show-logos orderby='none' category='0' activeurl='new' style='normal' interface='grid' tooltip='false' description='false' limit='0' filter='false' ]
Heim / Tölvuleikir / Nýtt myndband fyrir „Ninja Gaiden 2 Black“ fjarlægt vegna ofbeldis
Hverju viltu fylgjast með?  Þitt er valið

Nýtt myndband fyrir „Ninja Gaiden 2 Black“ fjarlægt vegna ofbeldis

Nýtt myndband fyrir "Ninja Gaiden 2 Black" fjarlægt vegna ofbeldis

Xbox-myndband fyrir „Ninja Gaiden 2 Black“ veldur usla – kvenninjur hverfa

Nýlega var tilkynnt að nýjasta kynningarmyndbandið fyrir „Ninja Gaiden 2 Black“ á Xbox hefur verið fjarlægt vegna þess að það innihélt efni sem var talið of gróft. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem slíkt gerist; árið 2008 krafðist ESRB að kynningarmyndband fyrir „Ninja Gaiden II“ yrði fjarlægt af svipuðum ástæðum.

„Ninja Gaiden II“ var upphaflega gefin út árið 2008 og hlaut þá 18 ára aldurstakmark frá BBFC vegna mikils ofbeldis og blóðs.

Í nýjustu útgáfunni, „Ninja Gaiden 2 Black“, hefur verið reynt að ná jafnvægi milli þess að viðhalda upprunalegu leikjaupplifuninni og að draga úr ofbeldisfullu efni til að ná til breiðari markhóps.

Þessar breytingar hafa vakið upp umræðu meðal aðdáenda leiksins um hvort leikurinn hafi tapað hluta af upprunalegum karakter sínum með því að milda ofbeldisatriði.

Til samanburðar þá er hægt að horfa Xbox-kynningarmyndbandið, sem er það sama og var sýnt í Direct-kynningunni:

Hér er svo PlayStation 5 myndbandið, sem er það sama og Steam-myndbandið:

Það sem veldur ruglingi er að Xbox-myndbandið er styttra og inniheldur öðruvísi myndefni en hin myndböndin. Eins og einn notandi á X (fyrrum Twitter) benti á, byrja mismunurinn við 0:35. Aðrir notendur tóku einnig þátt í umræðunni og sýndu skýrt fram á að í Xbox-myndbandinu voru þrjár kvenkyns ninjur úr Steam/PlayStation 5 myndbandinu skipt út fyrir karlkyns skrímsli.

Mynd: teamninja-studio.com

Um Chef-Jack

Chef-Jack er matreiðslumaður að mennt og hefur verið með pennann á lofti til fjölda ára og skrifað mikið um tölvuleiki og allt sem snýr að Íslensku tölvuleikjasamfélaginu. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]