Íslenska rafíþróttafélagið Dusty eSports ehf. hefur verið sett í sölu. Félagið var stofnað árið 2019 og hefur síðan þá skipað sér í fremstu röð íslenskra rafíþróttaliða, unnið fjölmarga meistaratitla hér á landi og tekið þátt í alþjóðlegum keppnum.
Allt félagið er til sölu, ásamt vörumerki og öðrum eignum, en eigendur eru einnig tilbúnir að skoða sölu á meirihluta eða minnihluta í félaginu.
Kennitalan hefur umsjón með söluferlinu fyrir hönd eigenda Dusty.
Vilja koma félaginu í góðar hendur
Í samtali við esports.is segja eigendur Dusty að markmiðið með sölunni sé að finna öfluga aðila sem geti tekið við félaginu og byggt áfram á þeim árangri sem náðst hefur.
„Okkur langar að finna öfluga aðila sem geta tekið liðið á næsta level,“
segja eigendurnir.
Þeir hafa rekið félagið sem áhugamál frá stofnun og lagt því til umtalsvert fé án þess að taka sjálfir fjármuni út úr rekstrinum.
„Búið er að byggja upp þekkt vörumerki í rafíþróttum síðustu árin, ótrúlega skemmtileg vegferð. Okkur hefur tekist að vinna fjölmarga titla og vinna með fullt af frábærum samstarfsaðilum.“
Þeir vilja nú finna aðila með brennandi áhuga á rafíþróttum og uppbyggingu rafíþróttaliðs sem geti hjálpað Dusty að ná enn meiri árangri á komandi árum.
Starfsemin heldur áfram óbreytt
Eigendur Dusty staðfesta við esports.is að starfsemi félagsins muni halda áfram með sama hætti meðan söluferlið stendur yfir.
Dusty hefur á undanförnum árum náð góðum árangri í Counter-Strike og öðrum rafíþróttagreinum. Félagið hefur meðal annars unnið fjölda íslenskra meistaratitla og keppt á erlendum mótum.
Þá hefur Dusty átt í samstarfi við fjölmörg fyrirtæki og byggt upp öflugt vörumerki í íslensku rafíþróttasamfélagi.
Samkvæmt sölulýsingu félagsins eru fylgjendur þess á samfélagsmiðlum um 8.800 talsins.
Ekkert ákveðið söluverð
Ekkert fyrirfram ákveðið söluverð eða verðmat liggur fyrir á Dusty eSports. Eigendur félagsins hvetja áhugasama til að hafa samband og leggja fram tilboð.
Að þeirra sögn er erfitt að verðmeta félag af þessu tagi og leggja þeir fyrst og fremst áherslu á að Dusty komist í góðar hendur.
Samkvæmt sölulýsingu hafa tekjur félagsins einkum komið frá samstarfssamningum við fyrirtæki og verðlaunafé úr keppnum.
Rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði, skatta og afskriftir (EBITDA) hefur verið jákvæður síðustu tvö ár, en reksturinn hefur ekki skilað hagnaði eftir afskriftir.
Eigendurnir telja að með auknum tekjum og hagræðingu í rekstri séu tækifæri til að efla félagið enn frekar.
Áhugasömum er bent á að hafa samband við Kennitöluna, sem sér um söluferlið.




