Call of Duty hefur verið eitt vinsælasta skotleikjaserían í yfir tuttugu ár og hefur þróast í stóran rafíþróttageira með milljónum aðdáenda um allan heim. Samkvæmt nýlegri grein frá Esports.net, er Tyler ‘aBeZy’ Pharris talinn besti Call of Duty spilari heimsins.
Vekjum athygli á þessari spennandi keppni: Íslensk lið fá tækifæri til að skína í NCL Call of Duty mótinu.
aBeZy hefur verið í fremstu röð síðan hann hóf atvinnumennsku árið 2018 og hefur unnið sér inn yfir 1,8 milljónir dala í verðlaunafé. aBeZy er hluti af Atlanta FaZe liðinu og hefur átt farsælt samstarf við liðsfélaga sinn, Chris ‘Simp’ Lehr, þar sem þeir hafa saman verið kallaðir ‘Tiny Terrors’ vegna yfirburða sinna á keppnisvettvangi.
Á listanum yfir topp tíu bestu Call of Duty spilara árið 2025 eru einnig nöfn eins og:
Chris ‘Simp’ Lehr
McArthur ‘Cellium’ Jovel
Brandon ‘Dashy’ Otell
Sam ‘Octane’ Larew
Anthony ‘Shotzzy’ Cuevas-Castro
Dylan ‘Envoy’ Hannon
Cameron ‘Cammy’ McKilligan
James ‘Clayster’ Eubanks
Ian ‘Crimsix’ Porter
Þessir leikmenn hafa skarað fram úr í rafíþróttunum og hafa haft veruleg áhrif á Call of Duty samfélagið með hæfileikum sínum og árangri.
Fyrir þá sem vilja kynna sér listann nánar og fá ítarlegri upplýsingar um hvern leikmann er hægt að lesa greinina í heild sinni á Esports.net.
Mynd: Steam