Í Fab Lab Húsavík hefur verið komið upp glæsilegri aðstöðu fyrir kennslu, hönnun og rafíþróttir sem mun nýtast til kennslu, þjálfunar og fjölbreyttra skapandi verkefna.
Aðstaðan verður sameiginlegur vettvangur fyrir Borgarhólsskóla, Framhaldsskólann á Húsavík, íþróttafélagið Völsung, Fab Lab smiðjuna og almenning.
Með þessu verkefni er verið að skapa eitt öflugasta tölvuverið á svæðinu, þar sem áhersla er lögð á gæðabúnað, samnýtingu og aðgengi. Aðstaðan verður meðal annars nýtt til rafíþróttaþjálfunar, námskeiðahalds, kennslu í skólunum og fjölbreyttra verkefna sem krefjast öflugra tölva.

Verkefnið hefði ekki orðið að veruleika án öflugs stuðnings frá samfélaginu:
Framsýn og Þingiðn styrktu verkefnið með glæsilegum skjám.
Heimamenn gáfu frábærar leikjamýs.
Hvalasafnið á Húsavík lagði til músarmottur.
GeoSea styrkti verkefnið með pening.
Víkurraf styrkti verkefnið með heyrnartólum og lyklaborðum.
Sparisjóður Suður Þingeyinga styrkti verkefnið með pening sem hægt var að kaupa tvær tölvur fyrir.
Fab Lab Húsavík, Framhaldsskólinn á Húsavík og Borgarhólsskóli lögðu jafnframt fram öflugar tölvur og eru nú sjö ný vinnslutæki komin í notkun. Stefnt er að því að fjölga þeim í tíu á næstu vikum og mánuðum. Fyrirtæki eða einstaklingar sem vilja leggja verkefninu lið með styrk eða búnaði eru hjartanlega velkomnir að hafa samband við Þekkingarnet Þingeyinga.
Samstarfssamningur milli skólanna og Fab Lab Húsavík gerir það að verkum að eitt sameiginlegt og afar öflugt tölvuver verður staðsett í smiðjunni. Með þessari samnýtingu nýtist búnaðurinn mun betur, fleiri fá aðgang að honum og auðveldara verður að halda honum í fremsta gæðaflokki til framtíðar.
Að sögn Þekkingarnets Þingeyinga markar verkefnið stórt skref fyrir tæknimenntun, rafíþróttir og stafræna sköpun á Húsavík. Vonast er til að nýja aðstaðan verði fljótt líflegur vettvangur fyrir nemendur, þátttakendur og áhugafólk á öllum aldri.
Mynd: hac.is



