Close Menu
    Nýjar fréttir

    Ljósleiðarinn áfram aðalstyrktaraðili Ljósleiðaradeildarinnar

    23.06.2026

    Forsala á GTA VI fyrir PS5 og Xbox Series X/S hefst í næstu viku

    18.06.2026

    Aðgengi að rafíþróttum í brennidepli

    16.06.2026

    Leikjarinn leggur Twitch á hilluna eftir 15 ár

    14.06.2026
    1 2 3 … 351 Next
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    esports.is
    • Forsíða
    • Tölvur og leikir
      • Íslenskt efni
      • Rafíþróttir
      • Mót framundan
      • Væntanlegt
      • Nintendo
      • PC leikir
      • Playstation
      • Xbox
    • Leikjarýni
      1. Leikjarýni
      Featured
      90

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      Chef-Jack12.08.2025
      Recent
      9.0

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      12.08.2025
      7.0

      Leikjarýni: RC-leikurinn Recharge kemur á óvart

      07.08.2025
      5.0

      Leikjarýni: Tónlistin heillar, en leikurinn sjálfur nær ekki sömu hæðum – þarfnast enn talsverðrar yfirferðar

      30.06.2025
    • Auglýsa?
    • Um okkur
      • Hafðu samband
      • Auglýsa?
      • Fréttabréf
      • Um vefinn
      • Íslenskar Fb grúppur
    • Klönin
      • Klön yfirlit
      • Dusty
      • Oldies Samsteypan
    • is
      • is
      • en
    esports.is
    Forsíða»Leikjarýni»Leikjarýni: Kláruðust skotin? Þá byrjar alvöruspennan í Make It Count
    Leikjarýni: Kláruðust skotin? Þá byrjar alvöruspennan í Make It Count
    Leikjarýni

    Leikjarýni: Kláruðust skotin? Þá byrjar alvöruspennan í Make It Count

    Chef-Jack13.05.2025Uppfært22.07.20253 mín lestur
    Deila
    Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link

    Leikjarýni: Kláruðust skotin? Þá byrjar alvöruspennan í Make It Count

    Leikjaframleiðandinn Sky Games býður spilurum í nýjan og spennandi bardaga í Make It Count, fjölspilunar-skotleik. Leikurinn blandar saman Top-down (Með sjónarhorni sem minnir á Diablo-leiki, roguelite-stíl og áherslu á samvinnu fyrir allt að þrjá leikmenn.

    Þeir sem taka sér hlutverk eftirlifenda í Make It Count takast á við ógn sem stafar af afskræmdum og yfirnáttúrulegum óvættum sem hafa lagt jörðina undir sig, verum sem minna helst á uppvakninga. Til að lifa af þarf að safna búnaði, takast á við fjölbreytt verkefni og vanda hverja ákvörðun, því skotfæri eru ekki endalaus og dauðinn getur leynst á næsta horni.

    Endurspilun og samvinna í forgrunni

    Leikurinn er byggður á breytilegum kortum þar sem leiðir, verkefni raðast upp af handahófi í hverri umferð. Það tryggir að engin tvö spil eru eins og býður upp á fjölbreyttar leiðir til að nálgast baráttuna. Þó að leikurinn hafi haft ákveðna heildarmynd og flæði, hefði persónulegri spilun reynst auðveldari ef hægt væri að halda áfram þar sem maður datt út. Að þurfa sífellt að byrja frá byrjun var ekki alveg minn tebolli, en það er hluti af áskoruninni sem fylgir roguelite.

    Leikjarýni: Kláruðust skotin? Þá byrjar alvöruspennan í Make It Count

    Skotfæri og átök við ólíka óvini

    Einn af kjarnaþáttum leiksins er takmörkuð notkun á skotfærum. Þó þau séu ekki endilega af mjög skornum skammti, þarf að forgangsraða notkun þeirra. Oftar en einu sinni varð ég uppiskroppa með skot og neyddist til að grípa til aukavopn, eins og skammbyssu sem olli minni skaða, sérstaklega gegn hörðustu uppvakningunum. Þessi þáttur ýtir undir taktíska hugsun en gæti nýst betur með aðeins opnari dreifingu á skotfærum.

    Takmörkuð sýn eykur spennuna

    „Fog of War“ eða svokölluð þokuslæð gerir leikupplifunina ófyrirsjáanlega og spennuþrungna. Leikmaður sér aðeins takmarkað fram fyrir sig og hættan getur skotið upp kollinum fyrirvaralaust. Þessi þáttur krefst þess að leikmenn haldi sig saman og vandi til verka, sérstaklega þegar farið er inn á ný svæði eða þegar stórir óvinahópar láta til sín taka.

    Leikjarýni: Kláruðust skotin? Þá byrjar alvöruspennan í Make It Count

    HUB-svæði – uppfæra persónur og vopn

    Utan bardagasvæða geta leikmenn dvalið í svokölluðu HUB-svæði, þar sem hægt er að uppfæra bæði persónur og vopn. Þar má einnig hanna og skreyta rýmið eftir eigin höfði.

    Leikjarýni: Kláruðust skotin? Þá byrjar alvöruspennan í Make It Count

    Samantekt

    Make It Count er metnaðarfullur og ákaflega aðgengilegur roguelite-skotleikur með áherslu á samvinnu. Þó að ég persónulega hafi saknað þess að geta haldið áfram þar sem frá var horfið, frekar en að hefja leikinn alltaf upp á nýtt, þá heldur hann dampi með fjölbreyttum verkefnum og spennandi óvissuþáttum.

    Grafíkin er þokkaleg og leikurinn keyrir vel, en með betri dreifingu á skotfærum hefði bardagaþátturinn fengið enn meiri dýpt og sveigjanleika.

    Leikurinn kemur út á Steam þann 19. maí 2025.

    Ég fékk leikinn án endurgjalds gegnum Keymailer.co. Rýnin er byggð á minni eigin reynslu og birting hennar er án utanaðkomandi áhrifa.

    Myndir: skjáskot úr leik – Gif myndir eru frá leikjahönnuði Make It Count

    Samantekt

    60%
    60%
    Dómur

    Make It Count er metnaðarfullur og ákaflega aðgengilegur roguelite-skotleikur með áherslu á samvinnu. Þó að ég persónulega hafi saknað þess að geta haldið áfram þar sem frá var horfið, frekar en að hefja leikinn alltaf upp á nýtt, þá heldur hann dampi með fjölbreyttum verkefnum og spennandi óvissuþáttum.

    Grafíkin er þokkaleg og leikurinn keyrir vel, en með betri dreifingu á skotfærum hefði bardagaþátturinn fengið enn meiri dýpt og sveigjanleika.

    Kostir
    1. Ágætis afþreying
    Gallar
    1. Vantar meiri dýpt í leikinn
    • Einkunn
      6

    Keymailer Leikjarýni Leikjarýni - eSports.is Make It Count Sky Games
    Deila Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    Chef-Jack

    Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

    Tengdar færslur

    Forsala á GTA VI fyrir PS5 og Xbox Series X/S hefst í næstu viku

    18.06.2026

    Leikjarinn leggur Twitch á hilluna eftir 15 ár

    14.06.2026

    Bancho snýr aftur í eldhúsið

    12.06.2026

    Nexus lokar í Kringlunni og Pedro fagnar

    25.05.2026
    Við mælum með

    Þorsteinn „TH0R“ Friðfinnsson mætir á PGL Astana

    04.04.2026

    Íslenskur Cobblemon server opnaður fyrir Minecraft aðdáendur

    28.03.2026

    Pixelwear.is tengir saman nörda- og leikjasamfélög landsins

    27.03.2026

    Íslendingurinn Torfi Frans: „Minecraft World er mikilvægt skref“

    22.03.2026
    1 2 3 … 10 Next
    Mest lesið
    Leikjarýni í vinnslu

    12. ágúst 2025
    Nýjasta leikjarýnin komin út: Echoes of the End

    7. ágúst 2025
    Nýleg leikjarýni: Recharge.

    30. júní 2025
    Nýleg leikjarýni: The Book of Aaru.

    Fleiri leikjarýni hér.

    esports.is
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    • Forsíða
    • Auglýsa
    • Tölvuleikir
    • Um vefinn

    Sláðu inn leitarorð hér að ofan og smelltu á Enter til að leita. Smelltu á Esc til að hætta við.