Tölvuleikurinn Echoes of the End, sem er þróaður af íslenska stúdíóinu Myrkur Games og gefinn út af Deep Silver, mun koma út 12. ágúst 2025 fyrir PC, PlayStation 5 og Xbox Series X|S. Leikurinn hefur vakið mikla athygli fyrir töfrandi heim, kvikmyndalega frásögn og leikvél sem dregur sterkan innblástur frá íslenskri náttúru.
Sjá einnig: Myrkur Games sameinar íslenskt hugvit og hágæða tækni í stórleiknum Echoes of the End
Í tilefni tilkynningu af útgáfudag leiksins var birt glænýtt 17 mínútna myndband þar sem leikmenn fá innsýn í heiminn Aemá – þar sem saga hetjunnar Ryn, fyrrverandi aðstoðarkonu krúnunnar, er sögð. Myndbandið sýnir m.a. samtöl, könnunarferðir, sverðabardaga og notkun yfirskilvitlegra krafta sem Ryn býr yfir.
Leikurinn er sagna- og persónudrifinn þar sem Ryn reynir að bjarga bróður sínum og koma í veg fyrir styrjaldir milli valdamikilla aðila. Með henni í för er samferðamaðurinn Abram Finlay, og þau eru dregin inn í heima þar sem vald, leyndardómar og siðferðileg átök fléttast saman í flóknu og krefjandi söguferli.
Að baki leiknum stendur íslenskt þróunarteymi sem hefur lengi unnið að því að skapa einstakan heim með stíl og dýpt í bæði frásögn og leikflæði. Landslagið og andrúmsloftið endurspegla harðneskjulega fegurð Íslands, og stuðst er við leikvélina Unreal Engine 5 til að skapa sjónræna upplifun á heimsmælikvarða.
Myndir: echoesoftheend.is






