Atvikið sem vakti heimsathygli á kiss cam á Coldplay-tónleikum í Bandaríkjunum í júlí tengist í sjálfu sér ekki tölvuleikjafréttum – nema fyrir þær sakir að lítill retro tölvuleikur með gamaldags útliti hefur nú verið gerður í tilefni þess.
Á tónleikunum, sem fóru fram í Massachusetts 15. júlí, var par sýnt kyssast á risaskjá tónleikagesta. Við nánari athugun kom í ljós að þar voru á ferð Andy Byron, þáverandi forstjóri gagnatæknifyrirtækisins Astronomer, og Kristin Cabot, mannauðsstjóri sama fyrirtækis – bæði í hjónabandi með öðrum. Myndband af atvikinu fór í dreifingu á samfélagsmiðlum og vakti harða gagnrýni, meðal annars frá fyrrverandi starfsfólki fyrirtækisins.
Astronomer greindi frá því að innri rannsókn væri hafin, og í kjölfarið lét Byron af störfum sem forstjóri. Cabot sagði einnig upp.
Í kjölfar málsins bjó tónlistarmaðurinn Jonathan Mann til einfaldan tölvuleik sem nefnist Coldplay Canoodlers. Leikurinn er í retro stíl og gerir notendum kleift að horfa á senuna spila sig aftur og aftur, með rödd Chris Martin – söngvara Coldplay – í bakgrunni þar sem hann bregst í beinni við atvikinu með undrun og kímni eins og sjá má í myndbandinu hér að neðan.
„Ég bjó til einfaldan tölvuleik sem heitir Coldplay Canoodlers. Þar stýrir leikmaður myndavél sem leitar að forstjóra og mannauðsstjóra fyrirtækis í ástarsenu meðal tónleikagesta.
Hvert skipti sem þú staðsetur þau gefur 10 stig.“
Segir Jonathan Mann, sem hannaði leikinn.
i vibe coded a little game called Coldplay Canoodlers
you’re the camera operator and you have to find the CEO and HR lady canoodling
10 points every time you find them
👇link pic.twitter.com/aA6e1R5aGJ
— 17 years of song a day (@songadaymann) July 18, 2025
Hér að neðan má sjá upprunalega myndbandið af atvikinu, sem hefur vakið mikla athygli og verið mikið deilt á netinu.
Mynd: skjáskot úr myndbandi




