CageConnor hefur hafið nýja þáttaröð á YouTube þar sem hann leiðir áhorfendur inn í gjörbreyttan heim Subnautica. Með viðbótum sem breyta öllum forsendum leiksins hefur Subnautica fengið nýtt líf, framandi, drungalegt og ómótstæðilegt í senn.
Í fyrsta þætti hrapar aðalpersónan niður á ókunnuga hafheima fjarlægrar plánetu. En eitthvað er öðruvísi. Heimurinn sem áður var vel þekktur virðist hafa verið endurforritaður.
„The world’s been rewritten… and it’s watching,“ segir CageConnor á áhrifaríkan hátt við upphaf þáttarins og undirstrikar þar með þá ógn og spennu sem svífur yfir vötnum í þessari útgáfu leiksins.
Viðbæturnar sem nýta má í gegnum mod eru fjölbreyttar: ný ökutæki, áður óséðar lífverur, framandi lífríki og dularfull leyndarmál sem bíða þess að verða grafinn upp. Heildarlisti viðbótanna verður birtur síðar á YouTube-rás CageConnor, en það sem þegar blasir við lofar mögnuðu ævintýri þar sem óvissa og uppgötvun eru í forgrunni.
Þeir sem fylgst hafa með CageConnor vita að hann leggur sig fram við að skapa vandað og áhrifaríkt efni. Þessi nýja þáttaröð er engin undantekning.
Áhorfendur eru hvattir til að gerast áskrifendur að rásinni ef þeir vilja fylgjast með þessu einstaka ferðalagi, þar sem kafað er dýpra en nokkru sinni fyrr og myrkrið er sjaldan eins hljóðlátt og þegar það horfir á móti manni.
Að lokum má geta þess að útgáfu Subnautica 2 hefur verið frestað til ársins 2026, en nánar má lesa um þær vendingar í þróun leiksins hér á esports.is.




