Það verður sannkölluð blanda af myrkri og meistaratöktum í kvöld þegar GameTíví fer í beina útsendingu klukkan 20:00 á twitch.tv/gametiviis. Að þessu sinni spila strákarnir tvo glænýja titla sem hafa vakið mikla athygli í leikjaheiminum: Silent Hill f og Ghost of Yōtei.
Í hinum dularfulla og hryllilega heimi Silent Hill f er von á köldum svita og taugatrekki þegar gamli góði japanski hrollurinn gerir endurkomu. Þeir sem kjósa að halda sig nær sverðinu en skugganum fá sitt í Ghost of Yōtei, þar sem samúræjar, heiður og himinblár snjór mætast í stórbrotnum bardögum og útsýni beint úr listaverki.
Að auki verða opnaðir nýir Match Attax pakkar, farið yfir nýjustu fréttir úr leikjaheiminum og ekki síst dregið út í glæstum vinningum. Áhorfendur fá tækifæri til að vinna Collectors Edition af Ghost of Yōtei og eintak af Silent Hill f.
Það má því búast við bæði hrópum og hlátri þegar GameTíví snýr aftur í kvöld, þar sem hryllingur og hetjur mætast í rafrænum átökum.




