
Finnbjörn Flosi Jónasson, betur þekktur sem Finnsi, hefur slegið í gegn á alþjóðavettvangi rafíþrótta. Hann er einn af fáum sönnum íslenskum atvinnumönnum í greininni og nýverið lyfti hann sjálfur heimsmeistaratitlinum í Marvel Rivals með stórliðinu Virtus.Pro.
Heimsmeistaramótið, Marvel Rivals Ignite, var haldið af framleiðendum leiksins NetEase með samtals verðlaunafé upp á eina milljón Bandaríkjadala. Mótaröðin var sannkallað heimsmeistaramót þar sem tvær undankeppnir voru haldnar í hverri heimsálfu og aðeins þau bestu tryggðu sér sæti í lokamótinu á DreamHack Atlanta um síðustu helgi.
Virtus.Pro sigraði bæði Evrópuforkeppnina og fór síðan alla leið í úrslit, taplaust. Liðið vann fimm leiki í röð í riðlakeppninni og hélt áfram að drottna í útsláttarkeppninni.
Úrslitin enduðu svo á þessa leið:
1. sæti – Virtus.Pro ($320,000)
2. sæti – Natus Vincere (NaVi) ($160,000)
3. sæti – FlyQuest ($120,000)
4. sæti – 100 Thieves ($100,000)
„Það var aðeins of létt fyrir úrslitaleik“
„Tilfinningin var náttúrulega frábær,“
segir Finnsi í samtali við esports.is.
„Við vorum búnir að æfa allt árið og það var ótrúlegt að sjá alla vinnuna skila sér með þessum sigri.“
Aðspurður um stemninguna innan liðsins þegar sigurinn var í höfn segir hann brosandi:
„Stemningin var góð auðvitað, en við fundum strax eftir fyrsta mappið að þetta myndi enda í sigri fyrir okkur. Þetta var eiginlega aðeins of létt fyrir úrslitaleik, en við vorum vel sáttir!“
Frammistaða Virtus.Pro var einstaklega sterk, og Finnsi er stoltur af liðinu sínu.
„Við töpuðum ekki einum einasta leik í gegnum allt mótið og ég er ótrúlega stoltur af öllum í liðinu fyrir að spila svona frábærlega.“
„Ég horfði á Virtus.Pro þegar ég var krakki, nú spila ég fyrir þá“
Finnsi segir að hann líti mest upp til liðsfélaga síns Nevix, sem spilar sama hlutverk og hann innan liðsins.
„Við spilum báðir sem Vanguard og hann er gríðarlega snjall og góður leikmaður. Hann vann líka í Overwatch League áður en við færðum okkur yfir í Marvel Rivals. Hann er leikmaður sem ég læri af í hvert skipti sem við spilum saman.“
Að keppa gegn risaliðum eins og NaVi og 100 Thieves var sérstök upplifun.
„Það er alltaf gaman að spila á móti þessum stóru org´um (innsk. fréttamanns: rafíþróttafélög) sem ég var að horfa á þegar ég var yngri. Ég horfði alltaf á Virtus.Pro og NaVi í Counter-Strike, svo það er geggjað að vera núna hluti af Virtus.Pro sjálfur.“
Marvel, ofurhetjur og ástríða fyrir „hero shooters“
„Marvel Rivals er einfaldlega skemmtilegur hero shooter,“
segir Finnsi, aðspurður um hvað gerir Marvel Rivals sérstakan leik að hans mati, miðað við aðra tölvuleiki.
„Ég hef alltaf haft gaman af þessum tegundum leikja, eins og Overwatch og Team Fortress 2, sem ég spilaði mikið. Það sem gerir Marvel Rivals sérstakan er að þetta eru Marvel-ofurhetjur. Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á þeim, sérstaklega eftir allar Marvel-myndirnar, svo það er auðvelt að tengjast leiknum.“
Ef hann gæti bætt einni hetju inn í leikinn væri það Iceman úr X-Men.
„Ég man þegar ég var yngri og horfði á X-Men 2 með eldri bróður mínum, Iceman var alltaf í miklu uppáhaldi hjá mér.“
„Ég er stoltur að setja Ísland á mappið“
„Ég er mjög stoltur að geta sett Ísland á mappið þegar kemur að rafíþróttum,“
segir Finnsi.
„Þegar ég byrjaði voru engir Íslendingar í þessum stóru liðum, svo mér finnst gaman að vera einn af þeim fyrstu sem ná svona langt. Ég hef verið að gera þetta í 8–9 ár og var áður á toppnum í Overwatch. Það er skemmtilegt að vera aftur á toppnum, nú í Marvel Rivals.“
Hann segir að vinir og fjölskylda hafi fylgst vel með og stutt hann í gegnum allt ferlið.
„Allir vinir mínir og fjölskyldan horfðu á hvern einasta leik. Það er ótrúlega gaman að finna fyrir þessum stuðningi að heiman.“
Ráð til ungra leikmanna
„Æfingin skapar meistarann,“
segir Finnsi ákveðinn.
„En það er líka mikilvægt að finna gott jafnvægi í lífinu. Ef maður gerir ekkert annað en að spila, þá brennur maður fljótt út. Það þarf að klára skólann, fara í ræktina, eyða tíma með vinum og leggja svo inn vinnuna í leiknum. Þannig nær maður árangri.“
Hann segir að Ísland sé á réttri leið.
„Rafíþróttir hafa vaxið mikið hér heima og ef þetta heldur svona áfram, þá munum við sjá fleiri atvinnumenn koma fram á næstu árum.“
Finnsi og Virtus.Pro hafa ekki aðeins unnið heimsmeistaratitil heldur líka hlotið virðingu rafíþróttaheimsins fyrir yfirburða frammistöðu. Ísland á sinn fulltrúa á hæsta stalli og það er enginn annar en Finnbjörn Flosi Jónasson.
Sjáðu hvernig Virtus.Pro tryggði sér heimsmeistaratitilinn:
Myndir: aðsendar







