Close Menu
    Nýjar fréttir

    Ljósleiðarinn áfram aðalstyrktaraðili Ljósleiðaradeildarinnar

    23.06.2026

    Forsala á GTA VI fyrir PS5 og Xbox Series X/S hefst í næstu viku

    18.06.2026

    Aðgengi að rafíþróttum í brennidepli

    16.06.2026

    Leikjarinn leggur Twitch á hilluna eftir 15 ár

    14.06.2026
    1 2 3 … 351 Next
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    esports.is
    • Forsíða
    • Tölvur og leikir
      • Íslenskt efni
      • Rafíþróttir
      • Mót framundan
      • Væntanlegt
      • Nintendo
      • PC leikir
      • Playstation
      • Xbox
    • Leikjarýni
      1. Leikjarýni
      Featured
      90

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      Chef-Jack12.08.2025
      Recent
      9.0

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      12.08.2025
      7.0

      Leikjarýni: RC-leikurinn Recharge kemur á óvart

      07.08.2025
      5.0

      Leikjarýni: Tónlistin heillar, en leikurinn sjálfur nær ekki sömu hæðum – þarfnast enn talsverðrar yfirferðar

      30.06.2025
    • Auglýsa?
    • Um okkur
      • Hafðu samband
      • Auglýsa?
      • Fréttabréf
      • Um vefinn
      • Íslenskar Fb grúppur
    • Klönin
      • Klön yfirlit
      • Dusty
      • Oldies Samsteypan
    • is
      • is
      • en
    esports.is
    Forsíða»Tölvuleikir»Total War snýr aftur til upprunans. Medieval 3 staðfest í tilefni 25 ára afmælis seríunnar
    Total War snýr aftur til upprunans. Medieval 3 staðfest í tilefni 25 ára afmælis seríunnar
    Tölvuleikir

    Total War snýr aftur til upprunans. Medieval 3 staðfest í tilefni 25 ára afmælis seríunnar

    Chef-Jack04.12.20253 mín lestur
    Deila
    Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link

    Total War snýr aftur til upprunans. Medieval 3 staðfest í tilefni 25 ára afmælis seríunnar

    Creative Assembly hefur opinberað Total War: Medieval 3 og staðfest að sagan færist aftur til hinnar sögulegu uppruna sem gerði leikjaseríuna að risanum sem hún er í dag. Tilkynningin markar upphaf afmælisárs Total War sem fagnar 25 árum frá útgáfu fyrsta leiksins.

    Síðasti Medieval-leikurinn kom út árið 2006 og hefur stúdíóið síðan ferðast um fjölbreytt tímabil og heimsveldi, allt frá fornu Egyptalandi í Total War, Pharaoh til þríleikja byggða á Warhammer-heiminum. Nú snýr kjarni hugmyndafræðinnar aftur til miðalda og lýsir Creative Assembly Medieval 3 sem hinum fullkomna miðalda­leikheim þar sem leikmenn eiga að sökkva sér dýpra inn í tímann en nokkru sinni fyrr.

    Loforð um blöndu sögulegrar nákvæmni og nýstárlegs frelsis í ákvörðunartöku eru höfð í fyrirrúmi og er leiknum lýst sem endurfæðingu sögulegu Total War línunnar fremur en hefðbundnum framhaldsleik.

    Medieval 3 er enn á forvinnslustigi og því liggur engin útgáfudagsetning fyrir. Kynningarmyndbandið má sjá hér:

    Creative Assembly heldur jafnframt áfram að rækta Warhammer-vígvöllinn sem fagnar tíu ára afmæli árið 2026. Total War, Warhammer 3, Lords of the End Times kemur út næsta sumar með fjórum nýjum goðsagnakenndum leiðtogum.  Sá fyrsti sem kynntur er til sögunnar er Nagash, hinn mikli galdramaður dauðans. Ókeypis End Times-uppfærsla fylgir í kjölfarið og á að umbylta herferðinni með nýjum sviðsmyndum og stórfelldum atburðum. Stúdíóið staðfestir jafnframt að Warhammer-línan sé langt frá því að vera komin á endastöð.

    Í tilkynningunni kom einnig fram að Creative Assembly hefur þróað nýja kynslóð af eigin leikjavél. Vélina kallast Warcore og á hún að bjóða þróunarteyminu mun öflugri verkfæri og tryggja að framtíðarleikir Total War komi út á PlayStation og Xbox samhliða PC.

    En afmælishátíð Total War er ekki búin. Á næstu viku verður kynntur nýr leikur á The Game Awards sem stúdíóið kallar eitt af metnaðarfyllstu verkefnum í sögu seríunnar. Í fyrra bárust fregnir af því að Creative Assembly ynni að Total War byggðum á Star Wars heiminum og því spyrja margir hvort sá leikur verði loks opinberaður.

    „Það er ótrúlegt að Total War sé orðið 25 ára,“

    sagði Roger Collum, varaforseti seríunnar í tilkynningu.

    „Við erum ólýsanlega þakklát fyrir að fá að skapa leiki sem samfélagið okkar spilar áratugum saman. Án þess væri ekkert af þessu mögulegt. Þetta ár er sameiginleg hátíð fyrir alla aðdáendur Total War. Gamla skólanum og þeim nýju, sögulegum og fantasíutengdum. Hér hefst næsti kafli og við hlökkum til næstu 25 ára.“

    Creative Assembly hefur átt stormasamt tímabil eftir útgáfu Total War, Pharaoh og fór þá óvenjulegar leiðir með að bjóða hluta­endurgreiðslur eftir gagnrýni leikmanna. Þá var looter-shooter leikurinn Hyenas felldur niður á síðustu stundu. Því virðist stúdíóið nú leita aftur í kjarnann sem byggði upp orðspor þess og vonast til að endurheimta traust og eftirvæntingu leikjafólks um allan heim.

    Mynd: totalwar.com

    Creative Assembly Incoming PC leikur PlayStation The Game Awards Total War: Medieval 3 Total War: Pharaoh Warhammer Xbox
    Deila Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    Chef-Jack

    Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

    Tengdar færslur

    Forsala á GTA VI fyrir PS5 og Xbox Series X/S hefst í næstu viku

    18.06.2026

    Leikjarinn leggur Twitch á hilluna eftir 15 ár

    14.06.2026

    Bancho snýr aftur í eldhúsið

    12.06.2026

    Nexus lokar í Kringlunni og Pedro fagnar

    25.05.2026
    Við mælum með

    Þorsteinn „TH0R“ Friðfinnsson mætir á PGL Astana

    04.04.2026

    Íslenskur Cobblemon server opnaður fyrir Minecraft aðdáendur

    28.03.2026

    Pixelwear.is tengir saman nörda- og leikjasamfélög landsins

    27.03.2026

    Íslendingurinn Torfi Frans: „Minecraft World er mikilvægt skref“

    22.03.2026
    1 2 3 … 10 Next
    Mest lesið
    Leikjarýni í vinnslu

    12. ágúst 2025
    Nýjasta leikjarýnin komin út: Echoes of the End

    7. ágúst 2025
    Nýleg leikjarýni: Recharge.

    30. júní 2025
    Nýleg leikjarýni: The Book of Aaru.

    Fleiri leikjarýni hér.

    esports.is
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    • Forsíða
    • Auglýsa
    • Tölvuleikir
    • Um vefinn

    Sláðu inn leitarorð hér að ofan og smelltu á Enter til að leita. Smelltu á Esc til að hætta við.