Close Menu
    Nýjar fréttir

    Ljósleiðarinn áfram aðalstyrktaraðili Ljósleiðaradeildarinnar

    23.06.2026

    Forsala á GTA VI fyrir PS5 og Xbox Series X/S hefst í næstu viku

    18.06.2026

    Aðgengi að rafíþróttum í brennidepli

    16.06.2026

    Leikjarinn leggur Twitch á hilluna eftir 15 ár

    14.06.2026
    1 2 3 … 351 Next
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    esports.is
    • Forsíða
    • Tölvur og leikir
      • Íslenskt efni
      • Rafíþróttir
      • Mót framundan
      • Væntanlegt
      • Nintendo
      • PC leikir
      • Playstation
      • Xbox
    • Leikjarýni
      1. Leikjarýni
      Featured
      90

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      Chef-Jack12.08.2025
      Recent
      9.0

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      12.08.2025
      7.0

      Leikjarýni: RC-leikurinn Recharge kemur á óvart

      07.08.2025
      5.0

      Leikjarýni: Tónlistin heillar, en leikurinn sjálfur nær ekki sömu hæðum – þarfnast enn talsverðrar yfirferðar

      30.06.2025
    • Auglýsa?
    • Um okkur
      • Hafðu samband
      • Auglýsa?
      • Fréttabréf
      • Um vefinn
      • Íslenskar Fb grúppur
    • Klönin
      • Klön yfirlit
      • Dusty
      • Oldies Samsteypan
    • is
      • is
      • en
    esports.is
    Forsíða»Tölvuleikir»Code Violet nálgast útgáfu – Lokagerð leiksins er tilbúin og útgáfuferlið hafið
    Code Violet nálgast útgáfu - Lokagerð leiksins er tilbúin og útgáfuferlið hafið
    Tölvuleikir

    Code Violet nálgast útgáfu – Lokagerð leiksins er tilbúin og útgáfuferlið hafið

    Chef-Jack06.12.20252 mín lestur
    Deila
    Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link

    Code Violet nálgast útgáfu - Lokagerð leiksins er tilbúin og útgáfuferlið hafið

    Þróunarteymið á bak við Code Violet tilkynnti í frradag að leikurinn sé kominn á það stig að lokagerð hans sé tilbúin og útgáfuferlið hafið. Samhliða gleðifréttunum fylgdu þó nokkrar skýringar á tæknilegum vandamálum sem komu upp á síðari stigum og höfðu áhrif á kynningaráætlunina.

    Á meðan á vottunarferlinu stóð komu upp þrálát vandamál sem snéru að réttindum og opnun aukahluta fyrir forpöntunar- og Deluxe útgáfur leiksins. Fjórir þróunaraðilar unnu langar vaktir vikum saman við að finna lausn, sem leiddi til þess að birting leiktraila, kynningarefnis og rýnikóða seinkaði.

    Code Violet nálgast útgáfu - Lokagerð leiksins er tilbúin og útgáfuferlið hafið

    Teymið stóð á endanum frammi fyrir tveimur leiðum. Að fresta útgáfunni um nokkra mánuði eða að færa leikinn yfir í eina sameinaða útgáfu þar sem öll fríðindi fylgja með. Valin var síðari leiðin og mun Code Violet því koma út í einni útgáfu sem inniheldur öll þau atriði sem áður voru bundin við forpöntun og Deluxe pakka.

    Við yfirfærsluna komu upp nokkur vandamál á sölulausnum, en Sony hefur að sögn verið afar samvinnuþýtt við að leysa úr málinu. Kaupendur sem höfðu tryggt sér Deluxe útgáfuna fá fulla endurgreiðslu og geta síðar keypt staðlaða útgáfuna, þar sem þeir fá engu að síður öll fríðindi.

    Forpantanir hafa verið sterkar og leikurinn hefur haldið sér í 6. til 7. sæti á sölulistum undanfarnar vikur. Teymið segir þetta vera hvatningu til að klára verkið af kostgæfni og skila leik sem beri með sér þá nostalgíu og sérstöðu sem hefur verið innblástur verkefnisins frá upphafi.

    Code Violet nálgast útgáfu - Lokagerð leiksins er tilbúin og útgáfuferlið hafið
    Code Violet nálgast útgáfu - Lokagerð leiksins er tilbúin og útgáfuferlið hafið
    Code Violet nálgast útgáfu - Lokagerð leiksins er tilbúin og útgáfuferlið hafið
    Code Violet nálgast útgáfu - Lokagerð leiksins er tilbúin og útgáfuferlið hafið

    Útgáfudagur stendur nú fastur. Code Violet kemur út 10. janúar 2026. Þróunarteymið viðurkennir að seinkunin sé óheppileg, en segir hana nauðsynlega til að tryggja hnökralausa og tryggja að leikurinn fari af stað án hnökra.

    Að lokum kemur fram að nýir trailerar og gameplay myndbönd verða birt á næstu dögum, ásamt frekari upplýsingum um yfirfærsluna í verslunum.  Leikurinn kemur fyrst út á PlayStation 5.

    We are thrilled to announce that Code Violet has gone GOLD as we put the final polish on the game ahead of release. We have some exciting news to share—and, unfortunately, a bit of a hiccup along the way.

    During certification, we hit some stubborn technical roadblocks related to… pic.twitter.com/UYgGkULEcF

    — TeamKill Media (@TeamKillMedia) December 3, 2025

    Myndir: teamkillmedia.com

    Code Violet Incoming PlayStation TeamKill Media
    Deila Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    Chef-Jack

    Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

    Tengdar færslur

    Forsala á GTA VI fyrir PS5 og Xbox Series X/S hefst í næstu viku

    18.06.2026

    Leikjarinn leggur Twitch á hilluna eftir 15 ár

    14.06.2026

    Bancho snýr aftur í eldhúsið

    12.06.2026

    Nexus lokar í Kringlunni og Pedro fagnar

    25.05.2026
    Við mælum með

    Þorsteinn „TH0R“ Friðfinnsson mætir á PGL Astana

    04.04.2026

    Íslenskur Cobblemon server opnaður fyrir Minecraft aðdáendur

    28.03.2026

    Pixelwear.is tengir saman nörda- og leikjasamfélög landsins

    27.03.2026

    Íslendingurinn Torfi Frans: „Minecraft World er mikilvægt skref“

    22.03.2026
    1 2 3 … 10 Next
    Mest lesið
    Leikjarýni í vinnslu

    12. ágúst 2025
    Nýjasta leikjarýnin komin út: Echoes of the End

    7. ágúst 2025
    Nýleg leikjarýni: Recharge.

    30. júní 2025
    Nýleg leikjarýni: The Book of Aaru.

    Fleiri leikjarýni hér.

    esports.is
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    • Forsíða
    • Auglýsa
    • Tölvuleikir
    • Um vefinn

    Sláðu inn leitarorð hér að ofan og smelltu á Enter til að leita. Smelltu á Esc til að hætta við.