GameTíví er aftur mætt í beinni útsendingu í kvöld, mánudag, klukkan 20:00, þar sem drengirnir ætla að kíkja undir húddið á Season 2 í Call of Duty: Black Ops 7. Þar verður farið yfir helstu breytingar, nýtt efni og það sem skiptir leikmenn mestu máli þegar nýtt tímabil gengur í garð.
Útsendingin fer fram á Twitch og er öllum opin sem vilja vera með þegar Season 2 er krufið til mergjar. Hægt er að fylgjast með í beinni á www.twitch.tv/gametiviis




