Ævintýraleikurinn Echoes of the End frá íslenska leikjastúdíóinu Myrkur Games er nú aðgengilegur í PlayStation Plus fyrir Extra og Premium áskrifendur. Ásamt því hefur leikurinn fengið nýja uppfærslu, samhliða nýrri stiklu.
Leikurinn hefur notið vinsælda á PlayStation, en er þetta í fyrsta sinn sem íslenskur tölvuleikur verður hluti af þessari áskriftarþjónustu. Þar geta áskrifendur þjónustunnar fengið aðgang að safni leikja gegn mánaðarlegu gjaldi, svipað og hjá streymisveitum sjónvarpsefnis, á borð við Netflix og Disney+.
„Það að Echoes of the End sé kominn á PlayStation Plus er risastór áfangi fyrir okkur. Þetta gefur leiknum mikinn meðbyr, þar sem hann verður nú aðgengilegur fyrir milljónir áskrifenda um allan heim.”
segir Halldór Snær Kristjánsson, framkvæmdastjóri Myrkur Games í tilkynningu.
„Frá útgáfu leiksins í ágúst, höfum við gefið út uppfærslur og viðbætur við leikinn sem hafa fengið góðar móttökur meðal spilara, sérstaklega ‘Enhanced Edition’ uppfærslan sem kom út í nóvember.
Það er mikil viðurkenning að fyrsti leikur fyrirtækisins sé nú hluti af PlayStation Plus úrvali hjá Sony Entertainment.”
Echoes of the End kom fyrst út í ágúst 2025 fyrir PlayStation 5, Xbox Series X|S og PC. Leikurinn er sögudrifinn hasar- og ævintýraleikur þar sem leikmenn stíga í spor Ryn, sem leggur af stað í hættulega ferð til að bjarga bróður sínum og afhjúpa samsæri sem gæti hrundið af stað nýju stríði.
We’re incredibly grateful for the support Echoes of the End has received since launch.
Thank you to everyone who’s taken the time to play, watch, share, and support the game, and make sure you check out today’s update, including a brand new photo mode!https://t.co/HTEdWN78Wi
— Myrkur Games (@MyrkurGames) February 19, 2026
Athygli vekur að Echoes of the End býður upp á íslenska textaþýðingu og íslenskt viðmót, sem gerir íslenskum spilurum í fyrsta sinn kleift að spila leik á PlayStation Plus á eigin tungumáli.
Samhliða útgáfunni á PlayStation Plus kom frí ný uppfærsla fyrir leikinn í gær, 19. febrúar, sem bætir við myndatökuviðmóti (e. Photo Mode) og nýjum hátíðarbúningum fyrir aðalpersónurnar, sem og ýmsum smærri lagfæringum og viðbótum.
„Frá útgöfu höfum við lagt mikla áherslu á að hlusta á alla endurgjöf frá spilurum og þróa leikinn í takt við það. Með nýjustu uppfærslunni bætum við Photo Mode sem leyfir spilurum frjálst að stilla myndavél og persónur leiksins til að fanga skemmtileg móment.
Við ætlum að halda myndakeppni, sem verður með hashtaggið #EchoesOfTheLens og fær sigurvegari nafn sitt ritað inn í leikinn að eilífiu.
Búningarnir sem bætast við koma í kjölfari af góðum móttökum á þeim búningum sem við kynntum í Enhanced Edition, en í þetta skiptið eru þeir í þema Valentínusar og í fyrsta skiptið fær Abram (förunautur Ryn) einnig búning í stíl.”
segir Halldór Snær.
Myndir: aðsendar







