Leikstjóri Resident Evil Requiem, Koshi Nakanishi, hefur ákveðið að taka sér hlé frá samfélagsmiðlum eftir að umræður aðdáenda um ástarlíf persónunnar Leon S. Kennedy fóru úr böndunum. Þetta kemur fram í umfjöllun á Kotaku.com.
Í lok Resident Evil Requiem sést Leon setja upp giftingarhring, sem gefur til kynna að hann hafi gengið í hjónaband einhvern tímann eftir atburði Resident Evil 6. Leikurinn upplýsir þó ekki hver eiginkonan er, sem hefur kveikt miklar umræður meðal aðdáenda. Sumir telja að þar sé um að ræða Ada Wong, en aðrir benda á Claire Redfield sem líklegan kost.
I saw so many people messaging Nakanishi about Leon’s marriage. I know it might not be the right thing to do,but I can’t hide how happy this makes me.After all these years,all the waiting, all the debates we can finally say it. Congratulations,Mrs Ada Wong Kennedy pic.twitter.com/FYpGvh20Bj
— Ada Wong (@urfavadawong) March 4, 2026
Samkvæmt Kotaku hafa aðdáendur sent Nakanishi fjölda skilaboða og birt skjáskot af meintum svörum hans á netinu. Leikstjórinn segir hins vegar að sum þessara skilaboða hafi verið breytt eða fölsuð.
Í færslu á Instagram þakkaði Nakanishi aðdáendum fyrir stuðninginn, en sagði jafnframt að hann ætli í bili að draga sig í hlé frá samfélagsmiðlum. Hann vonast þó til að geta tilkynnt nýjar upplýsingar um málið síðar.





