Close Menu
    Nýjar fréttir

    Leikjarinn leggur Twitch á hilluna eftir 15 ár

    14.06.2026

    Bancho snýr aftur í eldhúsið

    12.06.2026

    Dusty tryggði sér Stórmeistaratitil Ljósleiðarans

    29.05.2026

    Finnsi rafíþróttamaður ársins

    27.05.2026
    1 2 3 … 351 Next
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    esports.is
    • Forsíða
    • Tölvur og leikir
      • Íslenskt efni
      • Rafíþróttir
      • Mót framundan
      • Væntanlegt
      • Nintendo
      • PC leikir
      • Playstation
      • Xbox
    • Leikjarýni
      1. Leikjarýni
      Featured
      90

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      Chef-Jack12.08.2025
      Recent
      9.0

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      12.08.2025
      7.0

      Leikjarýni: RC-leikurinn Recharge kemur á óvart

      07.08.2025
      5.0

      Leikjarýni: Tónlistin heillar, en leikurinn sjálfur nær ekki sömu hæðum – þarfnast enn talsverðrar yfirferðar

      30.06.2025
    • Auglýsa?
    • Um okkur
      • Hafðu samband
      • Auglýsa?
      • Fréttabréf
      • Um vefinn
      • Íslenskar Fb grúppur
    • Klönin
      • Klön yfirlit
      • Dusty
      • Oldies Samsteypan
    • is
      • is
      • en
    esports.is
    Forsíða»Tölvuleikir»Leikjarinn leggur Twitch á hilluna eftir 15 ár
    Birkir Fannar - Leikjarinn kveður Twitch eftir 15 ára streymi
    Tölvuleikir

    Leikjarinn leggur Twitch á hilluna eftir 15 ár

    Chef-Jack14.06.2026Uppfært14.06.20263 mín lestur
    Deila
    Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    Birkir Fannar - Leikjarinn kveður Twitch eftir 15 ára streymi
    Birkir Fannar, betur þekktur sem Leikjarinn, mun halda sitt síðasta Twitch-streymi í kvöld eftir fimmtán ára feril á streymisveitunni.

    Birkir Fannar, betur þekktur undir nafninu Leikjarinn á Twitch, mun halda sitt síðasta streymi í kvöld, sunnudaginn 14. júní. Þar með lýkur rúmlega fimmtán ára kafla í íslensku streymisamfélagi, en Birkir hefur verið í beinni útsendingu frá árinu 2011 og byggt upp dyggt samfélag í kringum efnið sitt.

    Leikjarinn er með um 3.400 fylgjendur á Twitch og hefur um árabil verið þekktur fyrir afslappaðar útsendingar, fjölbreytt leikjaval og náið samband við áhorfendur sína.

    Í kveðjufærslu rifjar Birkir upp tímabil þegar streymisferill hans virtist geta þróast í fulla atvinnu. Hann segir að Omeed Dariani, sem starfaði sem Senior Global Brand Manager fyrir EverQuest Next og EverQuest Landmark, hafi komið sér inn í hóp streymara sem unnu saman að kynningu leikjanna og uppbyggingu samfélags í kringum þá.

    Birkir Fannar - Leikjarinn kveður Twitch eftir 15 ára streymi

    Á þeim tíma naut Leikjarinn reglulega stuðnings frá stærri streymurum og segir að áhorfendatölur hafi stundum náð allt að 700 manns. Á sama tíma vann hann í frystihúsi á Fáskrúðsfirði á daginn og streymdi leikjum á borð við EverQuest Landmark og Hearthstone á kvöldin.

    Þrátt fyrir að hafa fengið tækifæri til að stækka enn frekar segir Birkir að hann hafi aldrei þorað að taka skrefið til fulls og gera streymið að atvinnu.

    „En ég var hræddur við að taka næsta skref og líta á þetta sem vinnu,“

    skrifar hann.

    Síðar flutti hann á Djúpavog þar sem hann hélt áfram að streyma, þó áhorfendum færi smám saman fækkandi. Hann segir þó að fjöldi áhorfenda hafi aldrei verið aðalatriðið.

    Það sem standi upp úr séu tengslin sem mynduðust í gegnum árin.

    „Nánast aldrei sami leikurinn, en samt varð til samfélag af fólki sem mætti aftur og aftur til að spjalla, hlæja og hanga saman.“

    Ástæða þess að Birkir ákveður nú að stíga til hliðar tengist fyrst og fremst fjölskylduaðstæðum. Annað barn þeirra hjóna er á leiðinni og á sama tíma hafi óvæntar aðstæður skapað óvissu um framtíðina, meðal annars varðandi mögulega flutninga.

    Birkir Fannar - Leikjarinn kveður Twitch eftir 15 ára streymi

    Þótt hann kveðji Twitch í bili útilokar hann ekki endurkomu síðar. Þá bendir hann einnig á að Leikjarinn Podcast hafi nýlega lokið á jákvæðum nótum með síðasta þættinum.

    Síðasta streymið verður tileinkað leiknum Hades II. Birkir segir leikjaseríuna hafa hjálpað sér í gegnum erfiða tíma og því þyki sér við hæfi að ljúka þessum kafla með henni.

    Að lokum þakkar hann áhorfendum fyrir stuðninginn í gegnum árin og segir að þó Leikjarinn hverfi af skjánum í bili sé ekki um endanleg kveðjustund að ræða.

    „Ég mun auðvitað snúa aftur einn daginn. En þangað til ætla ég bara að teikna, mála og vera lélegur í skák.“

    Myndir: Instagram / @leikjarinn

    Leikjarinn Twitch
    Deila Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    Chef-Jack

    Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

    Tengdar færslur

    Bancho snýr aftur í eldhúsið

    12.06.2026

    Nexus lokar í Kringlunni og Pedro fagnar

    25.05.2026

    Íslenska Gran Turismo Samfélagið fagnaði tímabilinu á lokahófi í Hafnarfirði

    09.05.2026

    Kaupa CCP fyrir nærri 15 milljarða

    04.05.2026
    Við mælum með

    Þorsteinn „TH0R“ Friðfinnsson mætir á PGL Astana

    04.04.2026

    Íslenskur Cobblemon server opnaður fyrir Minecraft aðdáendur

    28.03.2026

    Pixelwear.is tengir saman nörda- og leikjasamfélög landsins

    27.03.2026

    Íslendingurinn Torfi Frans: „Minecraft World er mikilvægt skref“

    22.03.2026
    1 2 3 … 10 Next
    Mest lesið
    • Birkir Fannar - Leikjarinn kveður Twitch eftir 15 ára streymi
      Leikjarinn leggur Twitch á hilluna eftir 15 ár
      14.06.2026
    • Bancho snýr aftur í eldhúsið
      Bancho snýr aftur í eldhúsið
      12.06.2026
    Leikjarýni í vinnslu

    12. ágúst 2025
    Nýjasta leikjarýnin komin út: Echoes of the End

    7. ágúst 2025
    Nýleg leikjarýni: Recharge.

    30. júní 2025
    Nýleg leikjarýni: The Book of Aaru.

    Fleiri leikjarýni hér.

    esports.is
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    • Forsíða
    • Auglýsa
    • Tölvuleikir
    • Um vefinn

    Sláðu inn leitarorð hér að ofan og smelltu á Enter til að leita. Smelltu á Esc til að hætta við.