
Alliance tryggði sér sannfærandi sigur í Svenska Cupen 2025 í Counter‑Strike 2 nú um helgina með 3–0 úrslitum gegn Metizport og hirti um leið 101.500 sænskar krónur (um 1.362.000 íslenskar krónur) í verðlaunafé ásamt dýrmætum VRS-stigum.
Uppskeran skilaði liðinu upp í 45. sæti á heimslistanum og undirstrikar jafnframt yfirburði þeirra á sænsku CS2-senunni þessa helgi.
ALLIANCE VINNER SVENSKA CUPEN 2025! 🏆
Med 3-0 i finalen är @theAllianceGG SEGRARE av Svenska Cupen!
Stort grattis! pic.twitter.com/SkBc0JOWxg
— Svenska Cupen | MAX (@SvenskaCupenGG) November 15, 2025
Úrslitaleikurinn var spilaður sem Best of 5 en reyndist aldrei verða meira en þriggja korta verkefni fyrir Alliance sem vann bæði án taps og án þess að Metizport næði tvöföldum tölum í lotum á nokkru þeirra. Fyrsta kortið, Inferno, snerist strax Alliance í vil þar sem liðið sýndi sterka T-hlið, náði 9–3 forskoti og innsiglaði sigurinn 13–9 þrátt fyrir nokkrar varnarlotur Metizport í lokin.
Á Overpass var sagan svipuð. Alliance tók 8–4 forystu á CT-hlið, vann pistol-lotuna í seinni hálfleik og hélt stöðugum dampi þar til 13–7 og annað kortið var í höfn. Metizport þurfti því nauðsynlega sigur á Ancient til að halda lífi í úrslitaleiknum en Alliance lét ekki deigann síga. Enn á ný tók liðið 8–4 forskot í fyrri hálfleik á T-hlið og lokaði svo leiknum af öryggi, 13–7, rétt eins og á kortinu á undan.
Words cannot describe how proud I am of our CS2 team.
This is the 3rd time we play Svenska Cupen, ever since we stepped into Swedish CS 2.5 years ago.A big milestone for us in such a passionate & competitive country.
Thank you to everyone who believed in us 💚 #LongLiveAlliance pic.twitter.com/j1zMtF1qME— Alliance kelly (@kellymilkies) November 15, 2025
Lokaniðurstaðan var því afgerandi 3–0 fyrir Alliance sem fékk fyrir vikið 1.362.000 krónur og ríflega VRS-stig í farteskið. Metizport hlaut 47.500 sænskar krónur (um 637.000 krónur) fyrir annað sætið, EYEBALLERS 34.000 sænskar krónur (um 456.000 krónur) fyrir þriðja sætið og Johnny Speeds 8.500 sænskar krónur (um 114.000 krónur) fyrir fjórða sætið.
Að lokum deildu southern lights og megoshort fimmta sæti með 3.400 sænskar krónur (um 46.000 krónur) hvor og FUT Academy og Lilmix skiptu með sér sjöunda sæti með 2.500 sænskar krónur (um 33.500 krónur) hvor.
Mynd: x.com / Alliance kelly



