Close Menu
    Nýjar fréttir

    Ljósleiðarinn áfram aðalstyrktaraðili Ljósleiðaradeildarinnar

    23.06.2026

    Forsala á GTA VI fyrir PS5 og Xbox Series X/S hefst í næstu viku

    18.06.2026

    Aðgengi að rafíþróttum í brennidepli

    16.06.2026

    Leikjarinn leggur Twitch á hilluna eftir 15 ár

    14.06.2026
    1 2 3 … 351 Next
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    esports.is
    • Forsíða
    • Tölvur og leikir
      • Íslenskt efni
      • Rafíþróttir
      • Mót framundan
      • Væntanlegt
      • Nintendo
      • PC leikir
      • Playstation
      • Xbox
    • Leikjarýni
      1. Leikjarýni
      Featured
      90

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      Chef-Jack12.08.2025
      Recent
      9.0

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      12.08.2025
      7.0

      Leikjarýni: RC-leikurinn Recharge kemur á óvart

      07.08.2025
      5.0

      Leikjarýni: Tónlistin heillar, en leikurinn sjálfur nær ekki sömu hæðum – þarfnast enn talsverðrar yfirferðar

      30.06.2025
    • Auglýsa?
    • Um okkur
      • Hafðu samband
      • Auglýsa?
      • Fréttabréf
      • Um vefinn
      • Íslenskar Fb grúppur
    • Klönin
      • Klön yfirlit
      • Dusty
      • Oldies Samsteypan
    • is
      • is
      • en
    esports.is
    Forsíða»Tölvuleikir»CCP staðfestir samtal Hilmars við Elon Musk
    logo - CCP
    Tölvuleikir

    CCP staðfestir samtal Hilmars við Elon Musk

    Chef-Jack13.09.20252 mín lestur
    Deila
    Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link

    logo - CCP

    Auðkýfingurinn Elon Musk, stofnandi Tesla og SpaceX, átti nýlega samtal við Hilmar Veigar Pétursson, forstjóra CCP Games, um mögulegt samstarf. Musk greindi frá þessu sjálfur á samfélagsmiðlinum X, þar sem hann sagði að samræðurnar hefðu meðal annars snúist um gerð gervigreindartölvuleiks.

    Í orðsendingu frá CCP til mbl.is er staðfest að fundur hafi farið fram, en fyrirtækið heldur spilunum þétt að sér. Þar kemur fram að Hilmar og Musk hafi rætt saman um þá möguleika sem gervigreindin býður upp á, og að CCP sé ávallt opið fyrir nýjum tæknilausnum sem geti styrkt sköpun og þróun innan leikjaiðnaðarins.

    Also had a good conversation with the makers of Eve Online. We discussed the possibility of collaborating on an AI game.

    Something that only AI could do.

    — Elon Musk (@elonmusk) September 9, 2025

    CCP leggur þó áherslu á að helsti fókusinn sé áfram á þá leiki sem nú þegar eru í þróun, eins og EVE Online og nýrri verkefni sem kynnt hafa verið. Það er því of snemmt að segja til um hvort samtalið við Musk leiði til frekara samstarfs, en áhuginn vakti strax miklar vangaveltur meðal leikjaáhugafólks, ekki síst þar sem Elon Musk hefur áður lýst yfir áhuga á leikjaiðnaðinum og getu gervigreindar til að umbylta honum.

    Ef samstarf kæmi til framkvæmda væri um að ræða sögulegt crossover milli íslenskrar leikjasögu og stærstu tæknifyrirtækja heims. Það væri ekki út í hött að segja að þetta gæti orðið einhvers konar „EVE x SpaceX DLC“ í anda vísindaskáldskapar.

    CCP Games Elon Musk
    Deila Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    Chef-Jack

    Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

    Tengdar færslur

    Forsala á GTA VI fyrir PS5 og Xbox Series X/S hefst í næstu viku

    18.06.2026

    Leikjarinn leggur Twitch á hilluna eftir 15 ár

    14.06.2026

    Bancho snýr aftur í eldhúsið

    12.06.2026

    Nexus lokar í Kringlunni og Pedro fagnar

    25.05.2026
    Við mælum með

    Þorsteinn „TH0R“ Friðfinnsson mætir á PGL Astana

    04.04.2026

    Íslenskur Cobblemon server opnaður fyrir Minecraft aðdáendur

    28.03.2026

    Pixelwear.is tengir saman nörda- og leikjasamfélög landsins

    27.03.2026

    Íslendingurinn Torfi Frans: „Minecraft World er mikilvægt skref“

    22.03.2026
    1 2 3 … 10 Next
    Mest lesið
    • Ljósleiðarinn áfram aðalstyrktaraðili Ljósleiðaradeildarinnar
      Ljósleiðarinn áfram aðalstyrktaraðili Ljósleiðaradeildarinnar
      23.06.2026
    Leikjarýni í vinnslu

    12. ágúst 2025
    Nýjasta leikjarýnin komin út: Echoes of the End

    7. ágúst 2025
    Nýleg leikjarýni: Recharge.

    30. júní 2025
    Nýleg leikjarýni: The Book of Aaru.

    Fleiri leikjarýni hér.

    esports.is
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    • Forsíða
    • Auglýsa
    • Tölvuleikir
    • Um vefinn

    Sláðu inn leitarorð hér að ofan og smelltu á Enter til að leita. Smelltu á Esc til að hætta við.